Cosby stefnir fyrir meiðyrði 14. desember 2015 23:42 vísir/ap
Bandaríski leikarinn Bill Cosby, sem sakaður er um að hafa misnotað yfir fjörutíu konur, hefur stefnt nokkrum þeirra fyrir meiðyrði. Hann segir þær einungis sækjast eftir peningum og kallar þær tækifærissinna. BBC greinir frá. Cosby lagði stefnuna fram eftir að sjö konur leituðu til dómstóla og kröfðust skaðabóta, en þær segja hann og hans fulltrúa hafa reynt að eyðileggja mannorð þeirra, eftir að þær stigu fram með ásakanirnar. Cosby hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu og hefur ekki verið ákærður en konurnar saka hann um að hafa byrlað þeim ólyfjan og nauðgað þeim. New York Times hefur undir höndum lokaðan vitnisburð leikarans hjá lögreglu frá árinu 2005, þar sem Cosby viðurkenndi að hafa orðið sér úti um vöðvaslakandi lyf, undir því yfirskyni a hann þjáðist af bakverkjum, og boðið konunum. Allt sem hafi gerst í kjölfarið hafi verið með þeirra samþykki. Um er að ræða þúsund blaðsíðna vitnisburð hans en hann var yfirheyrður í fjóra daga á árunum 2005 og 2006, eftir að kona sakaði hann um kynferðisbrot. Síðan þá hafa fjölmargar konur kært hinn sjötíu og átta ára gamla leikara fyrir svipaðar sakir. Sum brotanna ná aftur til áttunda áratugarins.
Mál Bill Cosby Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Fleiri fréttir Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira