Eygló aftur á verðlaunapall á EM Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. desember 2015 15:56 Eygló Ósk Gústafsdóttir í lauginni. Vísir/Anton
Eygló Ósk Gústafsdóttir vann aftur bronsverðlaun á Evrópumeistaramótinu í 25 m laug sem nú stendur yfir í Netanya í Ísrael, nú í 200 m baksundi. Eygló synti á 2:03,53 mínútum sem er bæting á Íslandsmeti hennar sem hún setti í undanrásunum í morgun. Hún vann einnig bronsverðlaun í 100 m baksundi í gær en 200 m baksund er hennar sterkasta grein.Sjá einnig: Eygló flaug inn í úrslit með þriðja besta tímann Katinka Hosszu frá Ungverjalandi vann gull, rétt eins og í gær, með miklum yfirburðum. Hún kom í mark á nýju mótsmeti, 1:59,84 mínútum en sjálf á hún heimsmetið í greininni, 1:59,23. Átján ára rússnesk stúlka, Daria Ustinova, vann silfur á 2:01,57 mínútum. Hosszu hafði drjúga forystu strax frá upphafi en rétt eins og í gær fór Eygló sér hægt í upphafi. Hún var í fimmta sæti eftir 150 metra en tryggði sér bronsið með stórglæsilegum lokaspretti. Niðurstaðan er glæsileg fyrir Eygló Ósk sem varð í gær fyrsta ófatlaða íslenska sundkonan sem kemst á verðlaunapall á stórmóti.Sjá einnig: Ég barðist við tárin á pallinum Þess má geta að Norðurlandametið í greininni er 2:03,26 mínútur og er það því enn í eigu Michelle Coleman frá Svíþjóð. Eygló á Norðurlandametið í 200 m baksundi í 50 m laug.
Sund Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Sérlega gleðileg jól í ár og langt hlé á enda Sport Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Körfubolti „Allir eru hér að skemmta sér í sátt og samlyndi“ Sport „Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast“ Sport Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Botnlið Fram vann óvæntan sigur á toppliði Blika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Frjálsíþróttahreyfingin vill ekki hleypa Rússum inn Uppgjör: Þór/KA - Grindavík/Njarðvík 1-0. Margrét með sigurmarkið í upphafi leiks „Leikmenn skora mörk en liðið tekur sigurinn“ Evrópu-Emil með þrennu í endurkomusigri Stjörnunnar „Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast“ Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Tvær brauðsneiðar reyndust uppskriftin að fimm mörkum Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Botnlið Fram vann óvæntan sigur á toppliði Blika Eyjakonur með fyrsta sigurinn í tvo mánuði Wolfsburg með nýjustu fréttir af Eriksen Uppgjör: FH - Þróttur R. | Ída Marín kom FH á toppinn með fimm mörkum Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga María að gera Þóri að afa Ekkert símtal frá Trump núna og Quansah í tveggja leikja bann Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Newcastle yngir upp á sumri breytinga „Allir eru hér að skemmta sér í sátt og samlyndi“ Bara risaleikir milli jóla og nýárs Arsenal fær Meslier frá Leeds Sérlega gleðileg jól í ár og langt hlé á enda Ætlar að gefa frí ef England vinnur HM Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir „Fá sér hamborgara og þrjú stig í kvöldmat“ Ingibjörg barnshafandi Svarar ásökunum Egypta um svindl: „Ekki hægt að hafa áhrif á dómgæsluna“ „Horfa á okkur sem sveitalið frá Íslandi“ Sjá meira