Hviður gætu farið yfir fimmtíu metra á mánudag Aðalsteinn Kjartansson skrifar 5. desember 2015 13:42 „
Það er fínasta veður á morgun. Það lægir smám saman í nótt og fyrramálið, og birtir til á morgun. En það er á mánudaginn, um hádegið, sem það fer að hvessa svolítið verulega og hætt við því að vindhraðinn verði meiri en í gær,“ segir Þorsteinn V. Jónsson veðurfræðingur. Spákort fyrir mánudaginn líta ekki vel út og segir Þorsteinn að vindhviður geti farið yfir fimmtíu metra á sekúndu. „Meðalvindurinn er upp í svona 28 metra en hviðurnar geta örugglega nálgast fimmtíu eða farið yfir það jafnvel,“ segir hann. „Eins og spárnar líta út núna er þetta verulega vont veður allra syðst; Eyjafjöll, Mýrdalur og Öræfi verður verst úti í rokinu,“ segir hann og bætir við: „Það mun einnig blása verulega á öðrum stöðum landsins.“ „Það kemur líka snjókoma sem fer svo út í slyddu eða rigningu hérna Sunnanlands þegar líður á daginn,“ segir hann. „Það blotnar í öllu. Það verður hláka.“ Þannig að færðin kann að vera slæm? „Ég held að það verði að segja það. Sérstaklega á Norðan og Vestanverðu landinu þar sem nær ekki að hlýna,“ segir hann. „Það verður líka slæmt veður hérna Sunnanlands. Það verður bara ekkert ferðaveður neins staðar á landinu á mánudaginn eftir hádegi.“ „Eins og þetta lítur út núna er þetta austanvonskuveður.“
Veður Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira