Þetta er það sem þú þarft að vita um veðrið daginn eftir storminn Aðalsteinn Kjartansson skrifar 8. desember 2015 06:28 Veðrið gengið yfir landið að mestu en enn vindasamt. Rafmagn komið á aftur á flestum stöðum, Vísir/Vilhelm
Veðrið gekk yfir að mestu á höfuðborgarsvæðinu um klukkan tvö í nótt en rok eða stormur hefur verið síðan þá og verður eitthvað áfram. Veðrið er gengið niður í öðrum landshlutum þó enn sé vindasamt. Helst er vindasamt fyrir vestan og norðan heiða.Óvissustigi hefur verið aflétt á öllu landinu.Rafmagnlaust er nokkrum stöðum; meðal annars á hluta Akureyrar og Vesturlandi.Almannavarnir hafa aflétt hættustigi á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum.Skólahald fellur víða niður í dag.Greiðfært er orðið á helstu vegum á Suðurlandi, Vesturlandi og Norðurlandi.Strætó gengur á höfuðborgarsvæðinu en búast má við röskunum á landsbyggðinni.Innanlandsflug hófst klukkan 11.15 og millilandaflug er á áætlun.Síðast uppfært klukkan 15.36Óvissustigi vegna óveðurs hefur verið aflétt á öllu landinu. Ríkislögreglustjóri tók ákvörðun um það í samráði við alla lögreglustjóra landsins. Óvissustigi var lýst yfir í gærmorgun en um tíma í gærkvöldi og nótt var búið að lýsa yfir hættustigi á Suðurlandi og Vestmannaeyjum. Þrettán farsímastöðvar Símans eru enn óvirkar eftir óveðrið í nótt. Flestar stöðvarnar sem um ræðir eru á Vesturlandi en þar eru sex stöðvar óvirkar. Greiðfært er orðið á helstu vegum á Suðurlandi og Vesturlandi. Þá eru vegir á Norðurlandi víða færir en hálka eða hálkublettir. Vegir á Vestfjörðum eru enn margir hverjir lokaðir sem og á hluta Austurlands. Fjallvegir inn til landsins eru meira og minna lokaðir. Enn er rafmagnslaust að hluta á Akureyri og að stærstum hluta á Vesturlandi. Nánar hér.Björgunarsveitarmenn eru enn að störfum í Skagafirði þar sem verið er að festa niður þakplötur. Beðið er þess að veðrið gangi niður eftir hádegi. Nánar hér.Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur aflétt hættustigi vegna óveðurs á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum. Óvissustig er þá í gildi á öllu landinu og verður staðan endurmetin eftir hádegið.Rafmagnslaust er á Vesturlandi eins og lesa má nánar um hér.Víða er lokun á vegum landsins enn í gangi, en búið er að opna allar aðalleiðir suðvestanlands. Lesa má um færð á vegum hér. Versta veðrið á landinu þessa stundina er á Vestfjörðum. Á Patreksfirði fauk mannlaust hús í heilu lagi á fimmta tímanum í nótt. Húsið var orðið gamalt og illa farið að sögn lögreglunnar á Ísafirði og fór brak úr því á tvö önnur hús í nágrenninu. Engum varð meint af. Allt innanlandsflug liggur niðri en athuga á með flug klukkan 11.15 í dag. Prófum í Háskóla Íslands, sem hefjast áttu klukkan 9, hefur verið frestað um hálftima og hefjast þau því klukkan 09.30. Rafmagnslaust er í hluta miðbæ Akureyrar. Unnið er að því að koma varaaflstöð á svæðið sem duga á til að koma rafmagni á það svæði sem er rafmagnslaust. Strætisvagnar á höfuðborgarsvæðinu hafa hafið akstur og eru flestar leiðir farnar að aka eftir leiðakerfinu. Aksturþjónusta Strætó mun hefja akstur samkvæmt bókunum klukkan 10. Vagnar á landsbyggðinni hefja akstur um leið og tækifæri gefast til en gert er ráð fyrir að einhver röskun verði á leiðakerfinu á landsbyggðinni. Farþegar eru beðnir um að fylgjast vel með á heimasíðu Strætó með upplýsingum um akstur vagnanna. Rafmagn hafði nýlega komið á aftur á Grenivík klukkan fimm, en þá var enn straumlaust á einum bæ á svæðinu. Varaafl hafði þá einnig nýlega komið inn á Kópaskeri. Rafmagni hefur verið skammtað á Raufarhöfn. Rafmagnslaust var á tíma á Þórshöfn og Húsavík og í Eyjafirði, þar á meðal Akureyri. Veðurspá morgunsins gerir ráð fyrir suðaustan og austan 20-28 metrum á sekúndu. Rigning eða slydda, en þurrt að kalla á Norðausturlandi. Hiti 2 til 7 stig. Það á svo að snúast í sunnanátt í kringum hádegi og læga smám saman. Spáir 10 til 18 metrum seinna í dag og skúrum eða slydduéljum. Kólnandi veður og hæg breytileg átt á morgun, úrkomulaust að mestu á landinu og frost 0 til 5 stig. Samkvæmt tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eru foreldrar beðnir um að fylgja yngri börnum í skóla og yfirgefa þau ekki fyrr en þau eru í öruggum höndum starfsfólks. Allir skólar verða opnir. Skólastarf annars staðar á landinu gæti einnig farið úr skorðum vegna veðursins. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar einnig við því að umferð gæti verið hæg með morgninum. Þá varar hún við því að flughált sé á götum borgarinnar en rigning hefur verið í nótt og er hiti kominn yfir frostmark. „Sýnið því sérstaka aðgát,“ segir lögreglan. Þá segir lögreglan rétt að gæta að niðurföllum til að forðast vatnstjón. Búið er að opna Reykjanesbrautina, Hellisheiðina þar sem er hált en greiðfært er um Þrengsli. Svona leit yfirlitskort Vegagerðarinnar út um klukkan tíu í morgun.Svona var staðan á þjóðvegum landsins um klukkan 14.Mynd/Vegagerðin
Veður Mest lesið Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Innlent Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Innlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Innlent Karl Héðinn stígur til hliðar Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Sérsveitin handtók mann í Garðabæ Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Innlent Fleiri fréttir Tengist ekki skuggaflota Rússlands: Óskar eftir undanþágu vegna viðskiptaþvingana Játaði gróft ofbeldi gegn eigin foreldrum og að hafa ekið á mann Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Þyrlan sótti slasaðan einstakling í Skaftafell Gæsluvarðhald yfir sveðjumanni í Úlfarsárdal framlengt þriðja sinni Sjaldséður beinhákarl í Faxaflóa Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Fyrsti konsertflygilinn í Skálholtskirkju vígður „Hvetjum fólk til þess að treysta okkur bara fyrir því“ Sækja mann sem datt af hestbaki Lögregla afþakkar þjónustu Skjaldar Íslands og Guðni boðar brennu Sjá meira