Bónusar auka ekki eljusemi bankamanna að mati forstjóra Deutsche Þorbjörn Þórðarson skrifar 30. nóvember 2015 11:27 John Cryan, annar tveggja forstjóra Deutsche Bank.
Forstjóri Deutsche Bank segist ekki skilja hvers vegna honum hafi verið boðin kaupaukagreiðsla og segist ekki leggja harðar af sér á hærri launum. „Ég hef ekki hugmynd um hvers vegna mér var boðinn samningur með bónusgreiðslu því ég lofa ykkur því að ég mun hvorki leggja meira né minna á mig vegna þess að einhver borgar mér meira eða minna,“ sagði John Cryan annar tveggja forstjóra Deutsche Bank á ráðstefnu í Frankfurt en frá þessu er greint í Financial Times. Cryan sagði að laun í fjármálageiranum væru almennt of há og sagðist ekki hafa fulla samúð með fólki sem legði harðar af sér og ynni lengur ef það fengi aðeins meira borgað. „Ég hef aldrei getað skilið hvers vegna aukinn auður knýr fólk til að hegða sér öðruvísi,“ sagði Cryan sem er 54 ára gamall Breti og menntaður frá Cambridge-háskóla. Ummæli Cryan hafa eðlilega fallið í grýttan jarðveg meðal kollega hans. Ummælin voru látin falla á sama tíma og Deutsche Bank og aðrir evrópskir bankar keppast við að sannfæra hluthafa um að aukið hlutafé sé skynsamlega nýtt til endurskipulagningar. Þetta hefur verið erfitt ár fyrir Deutsche Bank sem þurfti að greiða 2,5 milljarða evra sekt vegna þátttöku í Libor-hneykslinu fyrr á þessu ári. Þá hefur bankinn upplýst um að hann muni tapa að minnsta kosti 4,6 milljörðum evra á þessu ári vegna mikilla afskrifta á útlánasafni. Cryan hefur áður sagt að stefna Deutsche Bank þegar bónusgreiðslur eru annars vegar hljóti að taka mið af þeirri staðreynd að bankinn muni hvorki greiða arð á þessu ári né því næsta.
Mest lesið Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Von á hóflegum hagvexti næstu árin Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Viðskipti innlent Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Viðskipti innlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira