Segir árásir í Sýrlandi vera hagsmunaatriði fyrir Breta Samúel Karl Ólason skrifar 26. nóvember 2015 13:13 David Cameron, forsætisráðherra Bretlands. Vísir/EPA „
Við eigum ekki að vera sátt við að útvista öryggi Bretlands til bandamanna okkar.“ Þetta sagði David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, á þingi þar í landi í dag. Þar var til umræðu tillaga ríkisstjórnarinnar um að Bretar myndu hefja loftárásir gegn Íslamska ríkinu í Sýrlandi. Bretar gera þegar loftárásir gegn ISIS í Írak.Cameron sagði ótækt að Bretar myndu ekki standa með bandamönnum sínum Frökkum. Hann sagði einnig að ekki væri hætta á að loftárásir í Sýrlandi myndu gera breska ríkisborgara að skotmörkum ISIS þar sem þeir væru það nú þegar.Samkvæmt frétt BBC sagði Cameron að ekki kæmi til greina að senda breska hermenn til Sýrlands. Auk þess tók forsætisráðherrann fram að hugsanlegar aðgerðir Breta myndu ekki beinast gegn Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, heldur eingöngu ISIS. Árið 2013 hafnaði þingið beiðni ríkisstjórnarinnar um að gera beinar árásir á sveitir Assad. Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, sagði að málið snerist um hvort að það að Bretar myndu hefja árásir í Sýrlandi myndi bæta öryggi ríkisborgara Bretlands til framtíðar. Einnig sneri málið að því hvort að frekari loftárásir myndi veikja eða í raun styrkja ISIS. Hann sagði engan vafa um að ISIS væri ógn við allan heiminn, en vildi fá það skýrt fram að Bretar myndu ekki hefja landhernað gegn ISIS.
Mið-Austurlönd Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Sjá meira