Mér fannst þó ekki alveg nóg að sitja bara í pottinum í kortér og fara svo upp úr. Fyrst ég væri komin í sund væri alveg eins gott að synda örlítið í leiðinni og fá blóðflæðið af stað. Ég er líka ólétt, með grindarverki og því fátt betra en að geta hreyft sig án verkja í lauginni og minnka líkur á bjúg í leiðinni. Þar sem ég finn fyrir grindarverkjum er þó ekki mælt með því að ég syndi bringusund, heldur skriðsund. Ég viðurkenni það fúslega að ég er alls ekki sterk í sundíþróttinni og hvað þá í skriðsundi en ég lærði nú grunn sundtökin í skólasundi og bætti svo aðeins við þekkinguna í íþróttafræðináminu svo ég ákvað að prófa skriðsundið.
Fyrsta daginn synti ég aðeins tvær ferðir og þurfti að mana mig upp í að byrja. Þær gengu ekkert sérstaklega vel og mér leið eins og ég væri að drukkna, alla þessa 50 metra. Daginn eftir bætti ég tveimur ferðum við og það gekk mun betur en daginn áður. Í dag er ég komin upp í tuttugu ferðir, bara af skriðsundi, og mér finnst það ekkert mál. Ég ætla að halda áfram að bæta við ferðum svo lengi sem líkaminn og tíminn leyfir. En hvað er það sem er svona gott við sund? Ég ætla að leyfa ykkur að njóta nokkurra staðreynda um sundið.
- Þegar maður syndir snertir líkaminn aldrei jörðina og líkaminn verður í rauninni léttari í vatninu svo álagið á liðina er minna en t.d. við hlaup. Þetta gerir það að verkum að nánast hver sem er getur hreyft sig til heilsubótar í sundi sem gæti það ekki annars vegar, t.d. þeir sem þjást af gigt, þeir sem eiga við meiðsli að stríða, þeir sem eru of þungir eða eiga erfitt með hreyfingar af einhverjum ástæðum.
- Sund er frábær leið til þess að auka þolið, auka aðeins við vöðvamassann og fá fitubrennsluna af stað.
- Við Íslendingar erum svo heppin að sund er á skólanámskránni okkar í mörg ár. Við byrjum að læra sundið snemma, kynnumst vatninu og sundhreyfingunum og eyðum svo næstu skólaárum í að fínpússa sundhreyfingarnar okkar. Þó svo að við séum ekki öll mjög sterkir sundmenn og sumir þurfi að hafa meira fyrir sundtökunum en aðrir þá geta flestir komið sér í gegnum nokkrar ferðir og bætt sig tiltölulega hratt miðað við aðrar hreyfingar. Því þarf ekki mikið til, einungis rétt hugarfar.
- Það er auðvelt að komast í sundlaug á Íslandi, í flestum sveitarfélögum eru upphitaðar sundlaugar þar sem hægt er að synda í og sundkortin fremur ódýr miðað við aðra líkamsrækt.
- Það þarf ekki mikið af búnaði í sundið, aðeins handklæði, sundöft og mögulega sundgleraugu. Þá ertu tilbúin/nn í slaginn!
- Það að synda er ekki það eina sem hægt er að gera í sundi. Það er hægt að gera ýmsar æfingar í vatni sem margir eiga annars erfitt með eins og t.d. armbeygjur, maður þarf bara að nota ímyndunaraflið og vera með viljann að vopni, þá eru manni allir vegir færir.