Barack Obama Bandaríkjaforseti kallaði eftir því í ræðu sinni á G20-leiðtogafundinum í Tyrklandi í dag að fleiri ríki komi Sýrlendingum til aðstoðar og sagði mikilvægt að árásirnar kæmu ekki niður á flóttafólki.
Þrátt fyrir það lýsa ríkisstjórarnir yfir efasemdum og segjast óttast það versta. Þau ríki sem þegar hafa óskað eftir því að móttöku flóttamanna verði frestað eru; Alabama, Arizona, Arkansas, Florida, Georgia, Idaho, Illinois, Indiana, Kansas, Louisiana, Mississippi, Maine, Massachusetts, Nebraska, New Hampshire, North Carolina, Ohio, Oklahoma, Tennessee, Texas og Wisconsin.
I just signed an Executive Order instructing state agencies to take all available steps to stop the relocation of Syrian refugees to LA.
— Gov. Bobby Jindal (@BobbyJindal) November 16, 2015
Sérfræðingar í innflytjendalögum segja kröfur ríkisstjóranna þó ekki standast lög. Hins vegar komist þeir á bak við lögin með því að draga úr fjármagni til málaflokksins.