Rassía gerð í höfuðstöðvum þýska knattspyrnusambandsins Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. nóvember 2015 09:31 Wolfgang Niersbach, formaður þýska knattspyrnusambandsins. Vísir/Getty
Þýsk skattayfirvöld og lögreglan í Frankfurt stóðu í morgun fyrir umsvifamiklum aðgerðum í tengslum við spillingarrannsókn í tengslum við HM 2006 í knattspyrnu, sem haldið var í Þýskalandi. Undanfarnar vikur hafa ásakanir þess efnis komið fram að Þjóðverjar hafi keypt atkvæði þegar kosið var um hvar ætti að halda HM í knattspyrnu árið 2006. Rassía var gerð í höfuðstöðvum þýska knattspyrnusambandsins sem og á heimilum þeirra Wolfgang Niersbach, formanni sambandsins, og Theo Zwanziger sem sat í skipulagsnefnd HM 2006. Þeir Niersbach og Zwanziger eru grunaðir um skattsvik í tengslum við háa peningagreiðslu til Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA. Upphæðin nemur 6,7 milljónum evra - jafnvirði 943 milljóna króna samkvæmt núgildandi gengi. Þýska blaðið Der Spiegel birti frétt í síðasta mánuði þar sem því var haldið fram að skipulagsnefndin hafi komið upp sérstökum sjóði upp á 6,7 milljónir evra til að kaupa þau atkvæði sem til þurfti til að vinna áðurnefnda kosningu. Niersbach neitaði þessum ásökunum og sagði að áðurnefnd greiðsla til FIFA ætti sér eðlilegar skýringar.
Þýski boltinn Mest lesið Fyrrum vonarstjarna Rússa lést á víglínunni í Úkraínu Fótbolti Slapp við annað gula spjaldið og var hetja Tottenahm stuttu síðar Enski boltinn Van Dijk: Átti augljóslega að vera hans annað gula spjald Enski boltinn Kane þrumaði yfir samherjunum: „Hvar er helvítis hjartað ykkar og kjarkurinn?“ Körfubolti Gæti mætt mömmu sinni á EM Sport Jón Daði á báðum áttum en opinn fyrir heimkomu Fótbolti Stalst í síma liðsfélaga og tók sjötíu sjálfur Körfubolti Breska frjálsíþróttasambandið ákært fyrir manndráp Sport „Ég mun vera með þetta út ferilinn minn, bara fyrir þig“ Körfubolti Dagskráin: Bónus deild karla í körfu í aðalhlutverki Sport Fleiri fréttir Hljóp beint í fang systur sinnar eftir að hafa haldið hreinu gegn Liverpool Gerði grín að gagnrýni Arteta á boltann Jón Daði á báðum áttum en opinn fyrir heimkomu Fyrrum vonarstjarna Rússa lést á víglínunni í Úkraínu Van Dijk: Átti augljóslega að vera hans annað gula spjald Slapp við annað gula spjaldið og var hetja Tottenahm stuttu síðar Mörk frá Gavi og Yamal komu Barcelona í úrslitaleikinn Yfirgefur æskufélagið og semur við Þrótt AC Milan og Dortmund sögð hafa áhuga á að fá Rashford Lið Jóhanns Berg kært til FIFA Rekinn frá West Ham og Potter að taka við Ronaldo hvetur Al-Nassr til að kaupa Casemiro Zidane líklegastur til að taka við af Deschamps Rosický gæti snúið aftur til Arsenal Situr inni með morðingjum og misyndismönnum í fangelsi hinna frægu Hjörtur þriðji úr vörn landsliðsins í Grikklandi Sjáðu mörk Newcastle gegn Arsenal „Jafnvel Salah væri í vandræðum hjá Tottenham“ Kennir boltanum um slaka færanýtingu Arsenal Valdi Ísland ekki Danmörku: „Snerist um hvað mig langaði mest að gera“ Man United goðsögnin mjög ósátt: Hafa ekki gert neitt jákvætt Deschamps hættir með Frakka eftir HM 2026 Newcastle með manninn sem Arsenal vantar Kaupir ný gleraugu á öryggisvörðinn og fær styttra leikbann Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Chelsea vill fá Guehi aftur Elfsborg að kaupa Júlíus Magnússon Segir að Forest fari í titilbaráttu með sigri á Liverpool Son framlengir við Spurs Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun Sjá meira