„Þetta er í fyrsta sinn sem ég vinn að tískumyndaseríu fyrir íslenskt tímarit. Ég veit eiginlega ekki af hverju, en ætli ég hafi bara ekki verið að bíða eftir rétta tækifærinu til að gera það,“ segir Anna í einlægu viðtali sem birtist í nóvembertölublaði Glamour.
Anna og fjölskylda hennar eiga mikið í blaðinu en hún sá um að mynda fyrirsætuna Amöndu Norgaard í forsíðuþættinum og myndirnar sem skreyta viðtalið eru úr tískuþætti sem Anna og eiginmaður hennar, ljósmyndarinn Guy Aroch, gerðu með dætrum sínum og fyrirsætunni Juliu G. Aroch er með frægari ljósmyndurum í heimi í dag.

„Við erum núna að gera auglýsingaherferð fyrir Coca-Cola, risaverkefni sem er mjög spennandi og skemmtilegt. Þetta er herferð sem fer í loftið í byrjun næsta árs og fer út um allan heim. Einnig vorum við að ljúka við að gera verkefni fyrir NASCAR í samstarfi við Coca-Cola hérna úti og höfum líka verið að vinna fyrir tímarit saman. Það er nýtt og spennandi að hafa möguleikann á að vinna saman en við munum að sjálfsögðu líka halda áfram að vinna hvort í sínu lagi.“
Lesa má meira um Önnu, lífið í New York og tenginguna við Ísland í nýjasta tölublaði Glamour!

Nóvemberblað Glamour er komið út!
Hægt er að tryggja sér áskrift hér, á glamour@glamour.is eða í síma 512 5550.