Spectre, 24. myndin í Bond seríunni, þénaði 73 milljónir dollara, 9,5 milljarða íslenskra króna, á opnunarhelginni sinni í Bandaríkjunum. Þetta er önnur stærsta opnunin hjá Bond mynd. En sú tekjuhæsta var Skyfall sem þénaði 88,3 milljónir dollara, 11,5 milljarða íslenskra króna, árið 2012.
Spectre sló einnig opnunarmet í Bretlandi fyrir nokkrum vikum og hefur þénað samtals 300 milljónum dollara, 39 milljarða íslenskra króna, um heiminn á tæpum tveimur vikum.
Spectre er ein dýrasta kvikmynd sem gerð hefur verið og kostaði milli um 250 milljónir dollara, 32,4 milljarða íslenskra króna, að taka hana upp. Talið er að hún þurfi að þéna allt að 600 milljónum dollara, 77,8 milljarða íslenskra króna, til að skila hagnaði.
Spectre átti aðra stærstu Bond opnunarhelgina

Tengdar fréttir

Ferill James Bond á undir þremur mínútum - Myndband
Fyrir rúmlega fimmtíu árum var fyrsta James Bond-myndin Dr. No frumsýnd og nú er verið að frumsýna nýjustu myndina Spectre hér á landi.

Þvílík Bondbrigði
Þrátt fyrir flott og skemmtileg hasaratriði nær Spectre ekki flugi.

Spectre sögð svöl og spennandi en falla fyrir gömlum klisjum
Gagnrýnendur hafa fengið að sjá nýjustu James Bond-myndina.

Spectre verður lengsta Bond-myndin
Nýjasta kvikmyndin um njósnara hennar hátignar, James Bond, verður lengsta Bond-myndin í sögunni eða um tveir og hálfur klukkutími.