Margir töldu að þessi mynd ætti eftir að ganga vel í kvikmyndahúsum. Leikstjórinn er Óskarsverðlaunahafinn Danny Boyle og er talin líkleg að fá nokkrar Óskarsverðlaunatilnefningar. Hún er metin 85 prósent fersk á vefnum Rotten Tomatoes.
Myndin náði rétt svo að skáka aðsóknartölum myndarinnar Jobs sem kom út árið 2013 en hún var einnig byggð á ævi Steve Jobs og skartaði AshtonKutcher í aðalhlutverki. Sú mynd þénaði 6,7 milljónir dollara á opnunarhelgi sinni.
TheMartian, með Matt Damon, átti þó enn eina góða helgina. Myndin tók inn 16 milljónir dollara í miðasölu en hún hefur verið í sýningu í fjórar vikur og þénað í heildina 166 milljónir dollara vestanhafs. Í öðru sæti á aðsóknarlistanum er myndin Goosebumps sem þénaði 15,5 milljónir dollara.
Fjölmiðlar vestanhafs hafa reynt að finna útskýringar á því hvers vegna svona mörgum nýjum myndum gekk illa á opnunahelginni.
Þótt tæpir að tæpir tveir mánuðir séu í frumsýningu sjöundu Star Wars-myndarinnar, TheForceAwakens, þá hefur gripið um sig afar öflugt Star Wars-æði um allan heim og hefur myndin þegar slegið öll met í forsölu. Er því haldið fram að þetta æði geri það að verkum að kvikmyndaáhugamenn hafi hreinlega ekki áhuga á öðru en sjá þessa nýjustu Stjörnustríðsmynd og aðrar myndir líði fyrir það.