Ferill Atla Viðars Björnssonar í efstu deild á Íslandi er fyrir löngu orðinn sögulegur en hann varð enn sögulegri þegar hann og félagar hans í FH-liðinu lönduðu Íslandsmeistaratitlinum í Kaplakrika á laugardaginn.
Atli Viðar varð þá Íslandsmeistari í sjöunda sinn en hann er eini leikmaðurinn í sögu FH sem hefur spilað fyrir öll sjö Íslandsmeistaralið félagsins.
Það sem gerir þetta fyrst sögulegt er að Atli Viðar hefur skorað á öllum þessum sjö Íslandsmeistaraárum og varð fyrsti leikmaðurinn frá stríðslokum (1945) sem skorar fyrir sjö Íslandsmeistaralið.

Atli Viðar hafði átti metið með þeim Ríkharði Jónssyni og Gunnari Guðmannssyni frá því að hann varð síðast Íslandsmeistari með FH-liðinu fyrir þremur árum. Ríkharður skoraði á öllum sex Íslandsmeistaraárum sínum með Fram og ÍA frá 1947 til 1958 og Gunnar skoraði á sex af níu Íslandsmeistaraárum sínum með KR frá 1948 til 1965.
Atli Viðar varð einnig aðeins þriðji leikmaðurinn sem vinnur sjö Íslandsmeistaratitla í nútímafótbolta eða frá því að deildin varð fyrst skipuð tíu liðum 1977. Hinir eru þeir Sigursteinn Gíslason (9 Íslandsmeistaratitlar) og Ólafur Þórðarson (7 titlar).
Atli Viðar hefur nú skorað 47 mörk fyrir Íslandsmeistaralið og komst í sumar upp fyrir þá Guðmund Steinsson (45) og Arnar Gunnlaugsson (41) en hann á enn nokkuð í land að ná Tryggva Guðmundssyni sem skoraði á sínum tíma 62 mörk fyrir Íslandsmeistaralið.

Atli Viðar hefur nú spilað fjórtán tímabil í efstu deild og unnið gull eða silfur á tólf þeirra eða 86 prósent tímabila sinna í efstu deild. Hann hefur fengið verðlaun á öllum nema tveimur fyrstu þegar FH endaði í 3. sæti 2001 og í 6. sæti 2002.
Atli Viðar sleit krossband á miðju sumri 2001 sem þýddi að hann missti af seinni hlutanum 2001 og fyrri hlutanum 2002.
Atli Viðar varð fyrr í sumar fyrsti leikmaðurinn sem nær því að spila bæði 200 leiki og skorað 100 mörk fyrir sama félag í efstu deild og hann hefur nú alls skorað 105 mörk í 222 leikjum.
Sigurganga FH-liðsins að undanförnu hefur jafnframt séð til þess að Atli Viðar er nú búinn að taka þátt í 102 fleiri sigurleikjum (139) en tapleikjum (37) í efstu deild á Íslandi.
Það hefur líka munað um framlag Atla Viðars í sumar. Hann átti frábærar innkomur af bekknum í góðum sigrum í upphafi mótsins og skoraði í fjórum leikjum í röð þegar sigurganga FH-liðsins hófst í júlílok.
Atli Viðar skoraði sigurmark í Keflavík 28. júlí, fyrsta sigurleiknum í sjö leikja sigurgöngu og skoraði síðan fyrsta mark FH-liðsins í næstu þremur leikjum á eftir.
Beið þolinmóður
Atli Viðar beið þolinmóður eftir tækifærinu sínu og nýtti það vel þegar það loksins datt inn. Þegar Steven Lennon meiddist var það gulls ígildi fyrir þjálfarann Heimi Guðjónsson að geta leitað til reynsluboltans Atla Viðars Björnssonar.
Atli Viðar hefur oftar en ekki þurft að sitja á bekknum undanfarin ár en markanefið stíflast ekkert með aldrinum og nokkrar afgreiðslur hans í sumar voru efni í kennslumyndbönd fyrir framherja.
Það er einnig afar fróðlegt að skoða gengi FH-liðsins í sumar miðað við þann tíma sem Atli Viðar er inná og útaf. Atli Viðar er þriðji markahæsti leikmaður FH-liðsins í sumar þrátt fyrir að hafa spilað aðeins 33 prósent af mínútunum í boði.

FH hefur unnið þær 629 mínútur sem hann hefur spilað með 19 marka mun (24-5) en er aðeins þrjú mörk í plús (21-18) á þeirri 1.261 mínútu sem hans hefur ekki notið við.
Þetta þýðir jafnframt að FH er bæði að skora örar og fá á sig mörk með lengra millibili þegar Atli Viðar hefur verið inn á vellinum.
Atli Viðar á eftir eitt ár af samningi sínum og það mátti heyra á honum eftir sigurinn um helgina að þessi 35 ára gamli sóknarmaður ætli sér að bæta fleiri mörkum og fleiri titlum á ferilskrána áður en skórnir fara upp á hillu.
Hvort og hvenær Heimir Guðjónsson setur hann inná völlinn verður hins vegar áfram ráðgáta en það verður seint metið til fulls að eiga svona ás uppi í erminni.