Ronaldo getur skorað 500. markið sitt í kvöld Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. september 2015 14:00 Cristiano Ronaldo sparkar flestum boltum sem hann sér beint í mark mótherjans. vísirg/etty
Cristiano Ronaldo tókst ekki að skora 500. markið á glæstum ferli sínum um síðustu helgi þegar Real Madrid mætti Granada í spænsku 1. deildinni. Real vann leikinn, 1-0, en markið skoraði Karim Benzema. Ronaldo bíður því enn með 499 mörk en getur sett það 500. gegn Athletic Bilbao í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3 í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19.00. Þessi ótrúlegi framherji skoraði mörkin 499 í 749 leikjum fyrir Sporting, Manchester United, Real Madrid og portúgalska landsliðið.mynd/whoscored.comHann er búinn að skora 321 í 305 leikjum fyrir Real madrid og er nú aðeins tveimur mörkum frá markameti goðsagnarinnar Raúl. Raúl spilaði aftur á móti rúmlega 400 fleiri leiki en Ronaldo er búinn að spila. Mörkin hefur Ronaldo skorað í öllum regnbogans litum. 325 hefur hann skorað með hægri fæti, 89 með vinstri, 83 með skalla og tvö mörk með öðrum líkamshluta. Hann hefur skorað 416 mörk í teignum, 83 fyrir utan teig, 81 af vítapunktinum og 45 úr aukaspyrnum. Hann hefur þó átt í basli með aukaspyrnurnar núna í að verða 18 mánuði. Flest mörkin hefur Ronaldo skorað á móti Sevilla eða 21 stykki. Getafe kemur þar næst með 18 og þá er hann búinn að skora 15 mörk í El Clásico-leikjum gegn Barcelona.
Spænski boltinn Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira