Seðlabanki Bandaríkjanna ákveður á september fundi sínum næsta miðvikudag og fimmtudag hvort hann muni hækka stýrivexti.
Samkvæmt greiningu IFS spá greiningaraðilar ytra því að 28% líkur séu á því að vextirnir verði hækkaðir. Hinsvegar spáðu sömu markaðsaðilar því í byrjun ágúst að líkunar væru rúm 55% en þar sem kínverska yuan-ið var fellt í millitíðinni hafa líkur á vaxtahækkunum í Vesturheimi lækkað.
Verðbólga er ennþá lág í Bandaríkjunum og hafa forsvarsmenn seðlabankans áhyggjur af sveiflukenndum alþjóðamörkuðum. Um þessar mundir eru stýrivextir nálægt 0%, ef þeir verða hækkaðir er talið að um lítilsverða hækkun sé að ræða, upp í 0,125-0,25%.
Telja 28% líkur á að vextir verði hækkaðir
Sæunn Gísladóttir skrifar

Mest lesið

Ræða við „hrokafulla“ Kana vegna áhyggja af tollum Trumps
Viðskipti erlent

Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað
Viðskipti innlent

Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin
Viðskipti erlent

Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila
Viðskipti innlent

Fluttu mun minna til Bandaríkjanna en meira annað
Viðskipti erlent


Minnkuðu lúxuspinna en ekki eldflaugina
Neytendur


„Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“
Viðskipti innlent

Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð
Viðskipti innlent