Eins og vitað var stillti íslenska liðið upp með skipulegan varnarleik líkt og í fyrri leiknum. Holland var meira með boltann eins og landsliðsþjálfararnir höfðu talað um. Þeir voru það líka í fyrri leiknum þegar Ísland vann.
Þrátt fyrir að verjast meira og minna framan af fyrri hálfleik var það Jón Daði Böðvarsson sem fékk besta færi leiksins. Jóhann Berg Guðmundsson sendi boltann fyrir markið en Jón Daði náði ekki að koma fæti í boltann á marklínunni.
Jón Daði hefur verið sjóðheitur með Viking upp á síðkastið og er búinn að skora grimmt í Noregi. Hann hefur vanalega ekki skort sjálfstraust í landsleikjum en fyrri hálfleikurinn var ekki hans besti.
Holland náði góðum tökum á leiknum eftir fimmtán mínútur og hófst þá varnarkafli hjá íslenska liðinu. Varnarleikurinn var góður en Hollendingar voru þó skarpari en í fyrri leiknum.
Heimamenn vildu koma boltanum í fætur Klaas-Jan Huntelaar fyrir framan teiginn og fá þar hlaup frá sínum stórhættlegu miðju- og kantmönnum. Strákarnir okkar lentu í smá brasi með sum upphlaup Hollendinganna en þeir fengu engu að síður engin svakaleg færi upp úr þessu.

Robben var virkilega hættulegur þann tíma sem hann var kominn inn á. Leikmenn íslenska liðsins og stuðningsmenn á vellinum og hér heima gátu því aðeins andað léttar þegar fyrirliðinn skipti sér út af vegna nárameiðsla.
Þó staðan væri markalaus í hálfleik var það Ísland sem kom betur út úr fyrri 45 mínútunum; Robben fór af velli og Holland missti sinn besta varnarmann af velli með rautt spjald.
Fyrri hálfleikurinn fór úr öskunni í eldinn hjá Hollandi þegar Bruno Martins Indi átti sitt Jan Koller-móment. Hann veit reyndar ekkert um þá sögu en það gerum við Íslendingar.

Indi tók því ekki vel og sló Kolbein í andlitið beint fyrir framan aðstoðardómarann. Rautt spjald niðurstaðan og þurfti Danny Blind, þjálfari Hollands, þá að nota aðra skiptingu. Hann tók framherjann Klaas-Jan Huntelaar af velli.
Manni færri minnti United-stjarnan Memphis á einstaklingsgæði Hollands þegar Hannes Þór Halldórsson hafði sig allan við að verja frá honum aukaspyrnu. Fyrri hálfleikurinn leið undir lok - bæði lið meira en tilbúin að komast til búningsklefa og endurmeta stöðuna.
Seinni hálfleikurinn var ekki fimm mínútna gamall þegar Ísland fékk vítaspyrnu. Okkar menn settu upp fína pressu við teig heimamanna sem endaði með því að Birkir Bjarnason fiskaði vítaspyrnu á svipaðan hátt og hann gerði hér heima. Frábærlega gert hjá Birki.
Gylfi Þór Sigurðsson steig á punktinn gegn líklega lélegasta markverði heims þegar kemur að því að verja vítaspyrnur, Jasper Cillesen. Ajax-maðurinn er svo slakur að Louis van Gaal tók hann úr markinu í framlengingu á HM í fyrra til að setja Tim Krul inn á. Já, þetta er hann.
Spyrnan hjá Gylfa var góð, föst í vinstra hornið, en Cillesen fór í rétt horn. Sem betur fer getur maðurinn bara ekki varið víti og Ísland því í draumalandinu; 1-0 yfir á 51. mínútu.

Stressið hvarf þó með hverri mínútunni og fóru okkar strákar að geisla af sjálfstrausti. Það hjálpaði líka til að Hollendingarnir virtust algjörlega ráðþrota. Það kristalaðist eiginlega í því þegar Ragnar Sigurðsson stoppaði með boltann við íslenska teiginn, setti hendur á mjaðmir en fékk enga pressu á sig.
Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á til að Ísland færi að halda boltanum betur. Eiður virkaði í betra standi þegar hann spilaði gegn Kasakstan í mars, en gæði hans eru engu að síður óumdeilanleg. Honum líður vel með boltann og strákunum í liðinu líður vel þegar hann er með hann.

Holland komst þó ekkert nær. Hannes var ósigrandi og varnarlínan mögnuð sem og allur varnarleikur liðsins. Áfram sýna þó Kári Árnason og Ragnar Sigurðsson að þeir eru með betri varnarpörum fótboltans í dag. Ísland aðeins fengið á sig þrjú mörk í sjö leikjum.
Lokatölur í Amsterdam ótrúlegar; 1-0 sigur Íslands og strákarnir okkar búnir að vinna Holland tvisvar sinnum, án þess að fá á sig mark, í þessari undankeppni. Ísland er fyrsta liðið sem vinnu báða leikina gegn Hollandi í undankeppni í 20 ár.
Strákarnir í draumaheimi og staðan er einföld: Ef Ísland fær stig gegn Kasakstan á Laugardalsvellinum á sunnuadaginn förum við á Evrópumótið 2016. Gæsahúð.