Hér koma nokkur ráð úr nýjasta tölublaði Glamour um hvaða hlutir eru ómissandi til að búa til góðan grunn í skápinn. Allir eiga þeir sameiginlegt að ganga við allt, detta seint úr tísku og hægt að klæða bæði upp og niður eftir hentugleika.
1. Stuttermabolur: Svartur og hvítur stuttermabolur úr góðu efni er nauðsynlegt að eiga í fataskápnum.
2. Leður: Buxur og jakki úr leðri er eitthvað sem dettur seint úr tísku.
3. Kápa: Yfirhöfn í góðu efni er klassísk flík og getur gert kraftaverk fyrir heildarútlitið.
4. Gallabuxur: Góðar gallabuxur eru gulls ígildi var einhvertíma sagt. Við erum sammála því, enda kemst fátt með tærnar þar sem góðar gallabuxur hafa hælana.
5. Hvít skyrta: Það verða allir að eiga eina góða hvíta skyrtu í fataskápnum sem fer vel við gallabuxurnar sem og fínni flíkur. Hægt að poppa upp með réttum fylgihlutum.
6. Leðurstígvél: Hvort sem þau eru með háum hælum eða flatbotna eru leðurstígvél eitthvað sem við notum á hverjum degi yfir vetrartímann og því mikilvægt að vanda valið.
7. Strigaskór: Strigaskótískan hefur tröllriðið öllu undanfarin misseri og er ekkert lát þar á. Um að gera að hafa þægindin í fyrirrúmi og velja sér par sem gengur í vinnuna sem og í afslöppunina um helgar.
Hér má sjá nokkra góða hluti í fataskápinn sem hægt er að kaupa hér heima frá Skór.is, Topshop, Dorothy Perkins, Warehouse, F&F og Zöru.



Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - tryggðu þér eintak!
Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.