Kári Árnason spilar í Meistaradeildinni í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. ágúst 2015 09:42 Leikmenn Malmö fagna marki í kvöld. Kári Árnason er fyrir aftan. Vísir/AFP
Kári Árnason og félagar í sænska liðinu Malmö slógu skoska liðið Celtic út úr umspili Meistaradeildarinnar í fótbolta í kvöld. Malmö vann þá seinni leik liðanna 2-0 og þar með 4-3 samanlagt en Skotarnir höfðu unnið fyrri leikinn 3-2 á heimavelli. Malmö-liðið minnkaði muninn í 3-2 á fimmtu mínútu í uppbótartíma í fyrri leiknum og það mark breytti miklu eins og sást í leiknum í kvöld. Malmö var sterkara liðið og Skotarnir áttu erfitt uppdráttar á móti Svíunum sem voru vel studdir af stuðningsmönnum sínum. Kári Árnason lék allan leikinn í miðri vörn Malmö-liðsins og fær nú tækifæri til að spila í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í vetur. Markus Rosenberg skoraði fyrra markið á 23. mínútu með skalla eftir hornspyrnu Yoshimar Yotún en Kári Árnason hélt varnarmönnum Celtic þá uppteknum. Þetta mark hefði dugað Malmö en liðið hefði þá farið áfram á fleiri mörkum á útivelli. Malmö bætti hinsvegar öðru marki við á 54. mínútu þegar sænska liðið skoraði aftur eftir hornspyrnu. Felipe Carvalho átti skalla að marki en á endanum var það Dedryck Boyata sem sendi boltann í eigið mark.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Íslenski boltinn „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Fleiri fréttir Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Sjá meira