Kínverski seðlabankinn lækkaði í dag stýrivexti sína. Er það í fimmta skipti frá því í nóvember sem það er gert. Einnig voru kröfur til eiginfjárhlutfalls banka lækkaðar til að reyna að draga úr áföllum á hlutabréfamarkaðnum. Þetta kemur fram á Bloomberg.
Stýrivextir lækka um 0,25 prósentustig niður í 4,6 prósent. Ákvörðunin hafði jákvæð áhrif á Evrópska markaði en FTSE vísitalan í London hækkaði um 3,3% í kjölfar hennar og hinar þýsku og frönsku Dax og Cac hækkuðu um fjögur og hálft prósent.
Forsætisráðherrann Li Keqiang hafði gefið út að á árinu væri stefnt að sjö prósent hagvexti. Kallað hafði verið eftir breytingunum í kjölfar hættu á auknu útstreymi fjármagns og minnkaðri greiðslugetu eftir að Kínverjar felldu gjaldmiðil sinn, júanið, þann 11. ágúst síðastliðinn.
„Hagkerfið er ennþá undir gífurlegri pressu,“ segir Yao Wei, kínverskur hagfræðingur búsettur í París. „Það verður að taka ríkisfjármálin í gegn og peningastefnan hefur miklu hlutverki þar að gegna með því að tryggja örugga lausafjárstöðu.“
Hættan á verðhjöðnun og stórt skuldafjall voma enn yfir hagkerfi landsins sem horfir fram á sinn minnsta hagvöxt frá árinu 1990 haldi markaðir áfram að hnigna.
Seðlabanki Kína lækkar stýrivexti

Tengdar fréttir

Kína heldur áfram að falla en aðrir Asíumarkaðir á uppleið
Sjanghæ vísitalan lækkaði um 7,6 prósent í viðskiptum dagsins.

Hrunið í Kína: Hræðsla greip um sig á íslenskum markaði
Mikil lækkun varð á hlutabréfamörkuðum í Evrópu í dag og er lækkunin rakin beint til hruns á hlutabréfamörkuðum í Kína.