Tulipop bestu nýliðarnir Ritstjórn skrifar 28. ágúst 2015 11:00 Helga Árnadóttir og Signý Kolbeinsdóttir, stofnendur Tulipop.
Íslenska barnamerkið Tulipop hlaut í vikunni viðurkenningu sem besti nýliðinn á Smallish Design Awards 2015 í Bretlandi. Verðlaunin eru ein virtustu á sviði hönnunarvara fyrir börn. Meðal keppenda voru rjómi breskra hönnunarmerkja og stofnana. Þar á meðal Harrods, Liberty, Stella McCartney, Petit Bateau og Bonpoint. Það voru yfir 200 tilnefningar, og þess vegna er mikill heiður fyrir Tulipop að fá þessa viðurkenningu.Tulipop er ævintýraheimur skapaður af þeim Signýju Kolbeinsdóttur og Helgu Árnadóttur sem hefur það að markmiði að búa til skapandi og fallegar vörur fyrir börn á öllum aldri. Þar má nefna lampa, ritföng, plagöt og margt margt fleira. Meðal annars settu þær á markað skólatöskulínu nýverið. Skólatöskur frá Tulipop. Fyrirtækið Tulipop var stofnað í byrjun árs 2010 og er vörulínan í dag seld í fjölda fallegra verslana á Íslandi auk þess að vera til sölu í 8 löndum utan Íslands. Vörulína Tulipop hefur hlotið lof víða um heim og fengið alþjóðleg hönnunarverðlaun 2014 og 2015.Mynd/Axel Sigurðsson Í skólahorninu í Epal í Kringlunni má finna allt fyrir skólann ! #Skólatöskur #Leikfimipokar #Pennaveski #Nestisbox #Brúsar #Möppur og #Minnisbækur @epaldesign A photo posted by The World of Tulipop (@tulipopworld) on Jul 30, 2015 at 3:04am PDT Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - tryggðu þér eintak! Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.
Mest lesið Kryddstúlkur sameinast á ný Glamour Anna Wintour heiðruð af bresku krúnunni Glamour Sumarleg götutíska í París Glamour Englarnir mæta til leiks Glamour "The kitchen is in a very disappointing mess“ Glamour Hubert de Givenchy deyr 91 árs að aldri Glamour Eiga von á sínu fyrsta barni Glamour Harry Bretaprins og Megan Markle hugguleg á stefnumóti Glamour Hönnuðir neita að klæða frægar konur vegna stærðar Glamour Beyoncé er drottning körfuboltavallarins Glamour