„Ég er með umboðsmann í Los Angeles og þetta verkefni kom í gegnum hann. Ég þurfti að senda frá mér svona „self-tape“ sem maður tekur upp sjálfur en svo höfðu framleiðendur líka séð mig í bíómyndunum sem ég hef verið í,“ segir Tómas í samtali við Vísi en frá þessu var greint fyrst á DV.
Á meðal þeirra leikara í X-Men: Apocalypse eru þau Jennifer Lawrence, Michael Fassbender, Olivia Munn og James McAvoy. Tómas má hins vegar ekkert gefa upp um hverjum hann leikur á móti í myndinni eða hversu stórt hlutverkið hans er þar sem hann er bundinn trúnaði um verkefnið. Þá má hann heldur ekki greina frá því hversu lengi hann var við tökur í Montreal.

Frá Kanada hélt Tómas svo til Sofíu í Búlgaríu þar sem hann tók þátt í skandinavísku listahátíðinni DOMA ásamt fleiri íslenskum listamönnum.
„Ég var þar að sýna klippimyndir sem ég hef verið að gera,“ segir Tómas en hann lauk á sínum tíma myndlistarnámi frá Listaháskóla Íslands. Hann segir leiklistina hafa tekið meiri tíma síðustu ár en að hann taki reglulega skorpur í myndlistinni.
Áður en Tómas kom svo í frí til Íslands fór hann til Tyrklands þar sem hann var í tökum á listrænni bíómynd sem sýnd verður á Istanbúl-tvíæringnum.
„Myndin var bæði tekin upp í stúdíóí en einnig úti, nálægt landamærum Sýrlands og Írans. Það var magnað að koma þangað en einnig nokkuð sérstakt því þarna er mikið af rústum og fornminjum en núna voru engir ferðamenn á svæðinu út af ástandinu í Sýrlandi,“ segir Tómas.