Vala Matt heimsækir pólskt eldhús í Reykjavík 20. maí 2015 13:23 VISIR.IS/VALAMATT
Kartöflubollur með svínakjöti og ljúffeng ostakaka með súkkulaðisósu Pólskar kartöflubollur með svínakjöti 700 g svínakjöt t.d. grísahnakki (kryddaður og fulleldaður) 1 laukur salt og pipar marjoram krydd 3 egg Deig: 1 kg kartöflur, soðnar salt kartöflumjöl Það sem fer yfir réttinn Beikon, best ef það er reykt 1 laukur olía Aðferð: Kryddið svínakjötið og steikið í ofni í 1 – 1,5 klst. Skrælið kartöflur og sjóðið í vel söltu vatni, þegar kartöflurnar eru tilbúnar er vatninu hellt af og þær látnar kólna. Maukið kartöflur og svínakjötið í hakkavél. Laukurinn er skorinn í litla bita og bætið honum saman við kjötið, næst bætið þið eggjum við og kryddið til með salti, pipar og marjoram(meiran). Blandið vel saman. Úr kartöflumaukinu er búin til ein stór kúla og henni skipt í 4 hluta. 1/4 hluti er tekinn upp og þá er fyllt "gatið" með kartöflumjöli, stráð salti örlítið yfir og hnoðað þangað til blandan er slétt og heil. Þá eru bollurnar búnar til: kartöfludeigið tekið sirka 2-2 1/2 msk á hendina og sett er kjötkúla í miðjuna og því er lokað og mótað í bollu. Soðið er vatn í stórum potti. Þegar vatnið nær suðu eru bollurnar settar varlega útí og soðnar í 10 mín. Beikon og laukur eru skorin í teninga og steikt upp úr olíu þangað til það verður gyllt og stökkt. Það er svo sett yfir þegar bollurnar eru bornar fram.Surówka.- súrkálssalat3/4 pakki súrkál1 epli1/4 laukur1 gulrót2 msk ólífuolíasalt og piparFersk steinseljaAðferð: Skerið epli og lauk í fíngerða litla bita, raspið gulrótina frekar gróft. Súrkálið sett í skál og allt blandað saman. Hellið olíu yfir og kryddið til með salti og pipar.Pólsk terta með súkkulaðisósu1 kg kvarg eða skyr200 g smjör, við stofuhita4 egg, aðskilin250 g sykur1 tsk vanilludropar2 msk semolina2 msk kartöflumjöl1 tsk lyftiduftAðferð: Hitið ofninn í 170°C. Hrærið saman sykur og smjör þar til blandan verður létt og ljós, bætið því næst skyrinu smám saman við ásamt vanillu. Blandið eggjarauðum við, einni í einu og síðan þurrefnum saman við. Hrærið öllu saman og hellið í smurt form ( 23cm í þvermál) og bakið við 170°C í 60 mínútur. Leyfið kökunni að kólna í ofninum og berið hana fram með súkkulaðisósu. Súkkulaðisósa75 g súkkulaði75 ml rjómiAðferð: Hitið rjóma að suðu og saxið súkkulaðið og leyfið súkkulaðinu að bráðna í rólegheitum. Hrærið í sósunni og berið strax fram Njótið vel.
Ostakökur Svínakjöt Uppskriftir Vala Matt Mest lesið Aldrei of seint að prófa sig áfram Tíska og hönnun Fékk lífið til baka á korteri eftir tólf ár af sársauka Lífið Troðningur á yfirfullri opnun: „Þetta var svolítið kreisí“ Lífið Pétur Kr. og Ingibjörg selja 270 fermetra eign við Ægisíðu Lífið „Fallegasti drengur í heimi“ er látinn Bíó og sjónvarp Upplifði stöðugan ótta við helvíti í samfélagi múslima í Svíþjóð Lífið Þórdís Dröfn hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Menning „Get ekki hætt að hugsa um bragðarefinn sem hann pantaði“ Lífið Stjörnulífið: „Dagur sem mun aldrei gleymast“ Lífið Langþráður draumur verður að veruleika Lífið Fleiri fréttir Smjörsteikt bleikja, smjörkennt hvítvín og „alkahólíseraður Texasbúi“ „Táknmynd ítalskrar matargerðar“ Silkimjúk espresso-kaka fyrir helgina „Forréttur sem ég býð öllum upp á“ Próteinríkt avókadó-salat að hætti Önnu Eiríks Sjá meira