Gærdagurinn, fimmtudagurinn 7. maí, var kaldasti dagur mánaðarins til þessa. Landsmeðalhiti í byggð reiknaðist -1,63 sem er -6,7 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára sem gerir þennan fimmtudag að kaldasta 7. maí frá upphafi sjálfvirka veðurathuganakerfisins sem var komið á árið 1996.
Þetta kemur fram á vefnum Hungurdiskar sem veðurfræðingurinn Trausti Jónsson stýrir. „Við vitum um nokkra kaldari almanaksbræður í fortíðinni, kaldastur síðustu 67 ára var sami dagur 1980 með meðaltalið -2,64 stig,“ skrifar Trausti.
Hann segir aðeins fjóra maí mánuðir hafa byrjað kaldari síðustu 67 árin í Reykjavíkhttps://trj.blog.is/blog/trj/, þrír á Akureyri og Dalatanga.
Samkvæmt Veðurstofu Íslands er von á litlum hitabreytingum næstu daga en samkvæmt langtímaspá er helst von á einhverjum hlýindum á þriðjudag en þá gæti hiti náð allt að 9 stigum og allt að tíu stigum á miðvikudag.
Á morgun verður norðaustlæg eða breytileg átt, 3 - 10 metrar á sekúndu, á morgun og dregur úr úrkomu Norðan- og Austantil. Stöku skúrir eða slydduél um landið sunnanvert. Frost 0 til 6 stig en hiti að fimm stigum Sunnanlands yfir daginn.
Á sunnudag:
Austan 3-8 og bjart með köflum, en 8-13 m/s og dálítil él við S-ströndina. Hiti 1 til 7 stig að deginum, en vægt frost NA- og A-lands.
Á mánudag:
Norðaustanátt, víða 8-13 m/s. Léttskýjað SV- og V-lands, en skúrir eða él á A-verðu landinu. Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag:
Norðaustlæg átt. Léttskýjað SV-til, annars skýjað og dálítil él á A-verðu landinu. Hiti 0 til 9 stig að deginum, hlýjast SV-lands.
Á miðvikudag:
Austanátt og smáskúrir á S-verðu landinu, en víða léttskýjað fyrir norðan. Hiti 0 til 10 stig, hlýjast V-lands.
Á fimmtudag:
Austan- og norðaustanátt. Skúrir eða él SA- og A-lands, annars skýjað en yfirleitt þurrt.
