Allt að 8 stiga frost í blábyrjun sumars Birgir Olgeirsson skrifar 22. apríl 2015 14:19 Vísir/Anton
Veðurstofa Íslands spáir fremur köldu veðri um komandi helgi á má gera ráð fyrir því að laugardagurinn verði kaldastur. Gerir Veðurstofan ráð fyrir 0 til 8 stiga frosti yfir daginn en mildast verður með Suðurströndinni. Veðurfræðingurinn Trausti Jónsson segir á bloggi sínu að það sé ástandinu talsvert til málsbóta að vindur verður líklega hóflegur yfir helgina og sömuleiðis að sólin fái að sjá sig. „Það munar verulega um hana. Sólarleysi er ávísun á frost allan sólarhringinn, líka á Suðurlandi - og það er mikið af því góða á þessum árstíma,“ skrifar Trausti. Hann segir það þó gerast endrum og sinnum í síðasta þriðjungi aprílmánaðar - en samt ekki síðan 1983, eða fyrir 32 árum. „Þá var hámarkshiti þess 22. aðeins -1,5 stig, enn „betur“ gerði 29. apríl 1975, þá fór hitinn ekki yfir -2,7 gráður, og 23. apríl 1887 var hámarkshitinn -8,0 stig.“ Hann segir þó mesta kuldann vera kominn hjá eftir laugardaginn þó ekki sé beint spáð hlýindum.Á föstudag og laugardag: Norðan- og norðaustanátt, víða 10-15 m/s. Él fyrir norðan og austan, en lengst af þurrt og bjart veður á S- og SV-landi. Frost 0 til 8 stig yfir daginn, mildast með S-ströndinni. Á sunnudag og mánudag: Ákveðin norðan átt og snjókoma eða él, en þurrt S-lands. Frostlaust við S-ströndina, annars víða 0 til 5 stiga frost. Á þriðjudag: Útlit fyrir norðlæga átt og stöku él, en bjart S-til. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun Innlent „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent Fleiri fréttir Ökumenn séu of óþolinmóðir fyrir steypta vegi Þúsund myndavélar fylgjast með því sem fram fer á flugvellinum Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun „Ó, mér líður svo vel“ Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Draga aflvana bát til hafnar nær Öndverðarnesi Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Sjá meira