Heilsa

Fjölfullnæging

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Listin að fá margar fullnægingar er ekki svo mikil kúnst heldur frekar þjálfun.

Í raun ættu flestir að geta þjálfað með sér getuna til að fá nokkrar fullnægingar, óháð kyni.

Helsti munurinn á typpi og píku í samhengi fullnægingar er að stundum þurfa sum typpi smá tíma eftir sáðlát (sem fylgir oft fullnægingu en þarf ekki að gera það) til að jafna sig áður en hægt er að halda áfram örvun.

Píkan virðist ekki þurfsa sömu hvíld þó vissulega geti hún orðið aum og viljað hvíld útaf oförvun.

Þegar rætt er um raðfullnæginginar eða margar fullnægingar þá getur verið erfitt að greina á milli þess hvort fullnæging séu margar stuttar eða hvort þetta sé ein löng.

Til að kafa dýpra ofan í þetta þá eru rannsakendur við sálfræðideild McGill háskólans í Montréal í Kanada að leggja spurningalista fyrir konur til að kanna þeirra upplifun af fjölfullnægingu.

Endilega taktu þátt og aðstoðaðu vísindasamfélagið við að dýpka skilning okkar á fullnægingunni!


Tengdar fréttir

Tíðarverkir

Tíðarverkir geta verið missterkir og stundum mjög sársaukafullir

Saflát

Sumir helga lífi sínu leitinni að g-blettinum og vökvanum sem er tengdur við hann. Sumir segja það vera þvag, aðrir segja þetta sé eingöngu í klámi, en um hvað snýst málið raunverulega?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×