Öllum bækistöðvum hryðjuverkasamtakanna Boko Haram sem vitað er um verður eytt á næstu sex vikum, gangi áform nígerískra stjórnvalda eftir.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem yfirvöld heita því að berja niður Boko Haram, en tilraunir til þess hafa verið árangurslitlar hingað til.
Um herská hryðjuverkasamtök múslima er að ræða sem vilja stofna íslamskt ríki í Nígeríu. Samtökin voru stofnuð í upphafi tuttugustu og fyrstu aldarinnar og merkir nafn þeirra "Vestræn menntun er synd".
Árásir samtakanna hafa kostað um þrettán þúsund manns lífið og báru þau ásamt fleirum ábyrgð á sprengjuárás á skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í borginni Abuja árið 2011 þar sem tuttugu og einn lét lífið. Heimsathygli vakti þegar þau rændu á þriðja hundruð ungra stúlkna úr heimavistarskóla í fyrra og nú í byrjun árs myrtu liðsmenn Boko Haram yfir tvö þúsund manns í bænum Baga. Var þar líklega um að ræða verstu fjöldamorð í sögu samtakanna.
Ein og hálf milljón hefur þurft að flýja heimili sín og hefur flóttamannastraumurinn meðal annars legið til nágrannaríkjanna Kamerún, Tsjad og Níger.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur ítrekað fordæmt aðgerðir Boko Haram og fylgist með meintum tengslum þeirra við Al-Kaída hópa í Malí, en hefur haldið sig utan átakanna þar sem um innanlandsmál hefur verið að ræða. Velta má fyrir sér hvort þetta muni breytast, þar sem árásir Boko Haram á nágrannalöndin hafa farið stigvaxandi undanfarið. Neyddust nígerísk stjórnvöld til að fresta forseta- og þingkosningum sem fara áttu fram næstu helgi til tuttugasta og áttunda mars en á laugardaginn gerðu stjórnvöld í Nígeríu, Kamerún, Tsjad, Níger og Benín samkomulag um að mynda sameiginlegan her, til að berjast við Boko Haram. Abubakar Shekau, leiðtogi samtakanna, gerði lítið úr þeim áformum í myndbandi sem birt var á YouTube í gær en stjórnvöld segjast hvergi munu hnika.
Hernaðarbandalag myndað gegn Boko Haram
Tengdar fréttir

Vígamenn Boko Haram myrtu yfir hundrað manns
Áætlað er að um tíu þúsund manns hafi látist í norðausturhluta Nígeríu vegna árása Boko Haram.

Fyrsta árás Boko Haram í Níger
Árásin var gerð í bænum Bosso, nærri landamærunum að Nígeríu.

„Boko Haram úr sögunni fyrir 28. mars“
Þing- og forsetakosningar fara fram í Nígeríu þann 28. mars.

Forsetakosningum í Nígeríu frestað
Kosningarnar áttu að fara fram eftir viku en hryðjuverkaógnin var metin of mikil.

Árásir Boko Haram halda áfram
Vígamenn hryðjuverkasamtakanna þurftu að hörfa frá bænum Diffa, sem varinn var af hernum.

Tsjadneskar hersveitir drepa 200 liðsmenn Boko Haram
Harðir bardagar geisuðu í borgunum Gamnaru og Ngala í norðausturhluta Nígeríu, nærri kamerúsku landamærunum, í gær.