Risvandamál sigga dögg skrifar 27. janúar 2015 09:00 Það er algengt að glíma við risvandamál á lífsleiðinni Vísir/Getty
Það er frekar algengt að glíma við risvandamál á einhverjum tímapunkti á lífsleiðinni og líkurnar aukast eftir því sem viðkomandi eldist. Ástæðurnar geta verið ýmsar (og er þetta ekki tæmandi listi): - Sálrænar; eins og streita, kvíði, sambandsvandræði, erfiðleikar með samskipti við bólfélaga eða þunglyndi - Líkamleg vandkvæði tengdum blóðflæði til typpis eða skemmdum taugaendum - Sjúkdómar líkt og sykursýki eða of hár blóðþrýstingur eða krabbamein, til dæmis í blöðruhálskirtlinum - Hliðarverkun lyfja - Áfengi og/eða reykingar Það er vissara að taka það fram að kynlíf er meira en bara samfarir og því er hægt að upplifa unað og fá fullnægingu þó limur nái ekki fullu risi.Vísir/GettyEf þú glímir við risvandamál þá er um að gera að leita sér aðstoðar hjá lækni. Hjá lækni er eftirfarandi skoðað: - Það er rætt um kynlíf þitt og samband við maka (ef maki er til staðar) - Rætt er um heilsufarssögu viðkomandi, það þarf að kanna hvort sjúkdómar eða lyf liggi að baki vandanum - Oftast er blóðþrýstingurinn mældur, hjartað hlustað og starfsemi þess skoðuð auk þess sem blóð- og/eða þvagsýni eru fengin til þess að athuga, hvort sykursýki sé dulin. - Í sumum tilfellum er ákveðnu efni, sem gerir það að verkum að getnaðarlimurinn rís, sprautað í liminn. Þetta próf er gert til þess að athuga um hvers konar vandamál sé að ræða. - Aðrar rannsóknir geta verið nauðsynlegar, t.d. er tekin blóðprufa og hormónastarfsemin skoðuð ef grunur leikur á að einhver truflun sé á hormónaframleiðslu. - Í sumum tilfellum er nauðsynlegt að leita til sérfræðings og hér eru það einkum þvagfæraskurðlæknar sem hafa fengist við stinningarvandamál. Ekki þjást í hljóði heldur farðu til læknis ef stinning er vandamál sem veldur þér áhyggjum.
Heilsa Tengdar fréttir Bogið typpi Það er eðlilegt að vera með bogið typpi en getur boginn verið of mikill, jafnvel hættulegur? 2. desember 2014 11:00 Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Lífið Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið
Bogið typpi Það er eðlilegt að vera með bogið typpi en getur boginn verið of mikill, jafnvel hættulegur? 2. desember 2014 11:00