Veitti sjálfum sér áverka Kolbeinn Tumi Daðason og Samúel Karl Ólason skrifa 28. janúar 2015 15:00 Maðurinn var fluttur í Fossvog. Vísir/Pjetur
Lögregla og sjúkrateymi var kallað að fjölbýlishúsi í Seljahverfinu í Breiðholti í nótt. Hælisleitandi hafði veitt sér áverka með hníf en vegna tungumálaörðugleika voru fimm handteknir grunaðir um hnífsstungu. DV greindi fyrst frá. Um er að ræða ungan mann frá Sýrlandi sem er nýkominn til landsins samkvæmt heimildum Vísis. Maðurinn útskýrði á sjúkrahúsinu að hann hefði sjálfur veitt sér áverkana. Var hinum handteknu í kjölfarið sleppt. „Áfallateymi okkar er núna að vinna að því að veita sambýlingum mannsins áfallahjálp. Eftir það sem gerðist í gær,“ segir Björn Teitsson, upplýsingafulltrúi Rauða Krossins. „Við leggjum áherslu á að veita þessa fólki eins mikla aðstoð og hægt er.“ Algengt er að hælisleitendum sé komið fyrir í íbúðum fjölbýlishúsa í Reykjavík. Lengi vel var svo gott sem öllum úthlutað plássi á Fit hosteli í Reykjanesbæ en nú er einnig notast við rými sem opið er í Reykjavík. Fólk getur verið frá ólíkum menningarheimum, talar ekki sama tungumál sem getur valdið misskilningi og vandræðum. „Hælisleitendur eru eðli málsins samkvæmt í mjög erfiðri stöðu og undir mjög miklu álagi. Þeir hafa næstum undantekningalaust þurft að leggja mjög mikið á sig til þess að flýja erfiðar aðstæður. Oftar en ekki hefur flóttinn jafnvel verið erfiðari,“ segir Björn. Eðli orðsins flóttamaður sé að þú ert að flýja. Þú ert ekki innflytjandi. „Þú ert ekki að sækjast eftir því að flytja í annað land, þú ert að flýja heimili þitt nauðbeygður. Rauði krossinn leggur áherslu á að það þarf að taka tillit til þess og þeirra aðstæðna sem að þetta fólk býr við,“ segir Björn.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira