Amedy Coulibaly segist vera á vegum Íslamska ríkisins Samúel Karl Ólason skrifar 11. janúar 2015 11:36 Amedy Coulibaly.
Myndband af manninum Amedy Coulibaly hefur verið birt á netinu þar sem hann talar í myndavél fyrir framan fána Íslamska ríkisins. Í myndbandinu segir Coulibaly að hann hafi verið meðlimur Íslamska ríkisins. Þá ver hann árásir sínar og bræðranna Cherif og Said Kouachi. Áður en hann hefur mál sitt birtist texti í myndbandinu þar sem staðfest er að hann hafi myrt lögreglukonu í París á fimmtudagsmorgun. Hann tók fjölda manns í gíslingu í matvöruverslun gyðingar í París degi seinna, en fjórir gíslanna létu lífið. Coulibaly var veginn af lögreglu í versluninni.AP fréttaveitan segir að búið sé að staðfesta að um Coulibaly sé að ræða. Hann segir einnig að hann og bræðurnir hafi skipt liði til að hámarka skaðann. „Það sem við erum að gera er algerlega lögmætt, miðað við það sem þeir eru að gera,“ segir Coulibaly í myndbandinu. „Þú getur ekki gert árás og ekki búist við hefndum og svo leikið fórnarlamb, eins og þú skiljir ekki hvað sé að gerast.“ Í lok myndbandsins kallar Coulibaly eftir frekari árásum á Frakka. Lögregla leitar nú að ekkju hans, en talið er að hún hafi tekið þátt í morði Coulibaly á lögreglukonunni. Starfsmaður Tyrknesku leyniþjónustunnar segir AP að talið sé að hún hafi ferðast til tyrkneskar borgar nærri landamærum Sýrlands og síðan sé ekkert vitað um ferðir hennar. Uppfært Youtube hefur fjarlægt myndböndin sem upprunalega fylgdu fréttinni, en ný myndbönd hafa verið tengd henni.
Charlie Hebdo Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Sjá meira