Heilbrigði hægðanna sigga dögg skrifar 16. janúar 2015 14:00 Vísir/Getty
Losun hægða er eitthvað sem allir þurfa að ganga í gegnum á einn hátt eða annan. Kúkur er 75% vatn og 25% fast efni. Föstu efnin eru þau sem við getum ekki nýtt úr fæðunni og líkaminn þarf að losa sig við. Samkvæmt Vísindavefnum: Undir eðlilegum kringumstæðum hefur fólk hægðir einu sinni til tvisvar á dag. Daglegt magn hægða hjá fullorðnum er 100-250 grömm, en fer eftir því hversu mikið er borðað. Í grófum dráttum verður um þriðjungur fæðunnar að hægðum miðað við þyngd.Ef þú átt erfitt með að losa hægðir, kúkurinn er þurr og harður þá glímir þú líklegast við hægðartregðu. Það stafað af því að fæðan sem þú neytir skorti trefjar. Hins vegar er hægðirnar eru mjög lausar í sér, vatnskenndar og miklar, eða svokallaður niðurgangur, þá er það merki um sýkingu í ristli. Ef það varir í lengri tíma þá getur líkaminn lent í vatns- og steinefnaskorti.Bristol taflan er ágæt viðmið þegar meta skal heilbrigði hægðanna. Þumalfingrareglan er sú að hægðir eiga að vera: - Hljóðlátar - Mjúkar - Langar og s-laga - Taka stuttan tíma - Ekki að skvettast í salernið heldur sökkva rólega - Frekar lyktarlausar - Er hægt að skeina í burt með einu skeini - Helst dagleg losun þar sem þú finnur að þarmar eru tæmdir Myndabandið hér að neðan er brot úr TEDx fyrirlestri Melissu Ramos næringar- og nálastungusérfræðings þar sem hún fjallar um mikilvægi bæði andlegrar og líkamlegrar heilsu og hvernig það sést best á því hvað lendir í klósettskálinni.
Heilsa Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Lífið Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið