Heimsmeistaramótið í knattspyrnu hefst á morgun og um að gera að búa til dýrindissnakk sjálfur heima fyrir.

Chili- og súraldinflögur
3 russet-kartöflur
Ólífuolía
Safi úr hálfu súraldini
1/4 tsk. rautt chiliduft
sjávarsalt
Hitið ofninn í 190°C. Hreinsið og skrælið kartöflur. Skerið þær í afar þunnar sneiðar. Setjið bökunarpappír á ofnplötu og burstið með olíu. Setjið kartöflusneiðarnar á plötuna, án þess þó að stafla hverri ofan á aðra. Setjið smá olíu og sjávarsalt ofan á sneiðarnar og bakið í fimmtán til tuttugu mínútur. Setjið sneiðarnar á eldhúspappír og leyfið mestu olíunni að fara úr þeim, blandið síðan súraldinsafanum og chilidufti saman við á meðan sneiðarnar eru enn heitar. Leyfið þeim að kólna áður en þær eru bornar fram.
Fengið hér.

Gráðaostsídýfa
1 lítill pakki rjómaostur, mjúkur
1/2 bolli fersk steinselja
1/4 bolli laukur
1/2 bolli sýrður rjómi
2 msk. hvítvínsedik
1 hvítlauksgeiri
1 tsk. sterk sósa, til dæmis Tabasco
1 tsk. sítrónubörkur
1/2 tsk. pipar
1/2 bolli niðurskorinn gráðaostur
Setjið öll hráefnin nema gráðaost í matvinnsluvél og blandið vel saman. Bætið síðan gráðaostinum við og blandið létt saman. Berið fram með snakki, grænmeti eða kjúklingavængjum.
Fengið hér.