Game of Thrones-dvergurinn leikur illmennið Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 22. maí 2014 09:30 Nýjasta X-Men-myndin hefur hlotið mjög góða dóma.
X-Men: Days of Future Past var frumsýnd í gær en hún fjallar um X-Men-hetjurnar eins og fyrri myndirnar. Nú eru þær í vanda staddar því í myrkum hliðarheimi ganga ill vélmenni Bolivers Trask um og veiða og myrða stökkbreytta. Prófessor X og Magneto bregða því á það ráð að senda Wolverine aftur í tímann til að breyta sögulegum viðburði sem gæti haft áhrif á alla, jafnt mannfólk sem stökkbreytta. Það er dvergurinn Peter Dinklage sem fer með hlutverk Bolivers Trask en hann er hvað þekktastur fyrir túlkun sína á Tyrion Lannister í sjónvarpsþáttunum Game of Thrones. Leikstjóri myndarinnar, Bryan Singer, segir karakter Bolivers vera byggðan á þýska nasistaforingjanum Adolf Hitler. „Hitler notaði gyðingana sem blóraböggla til að tengja saman myrka hluta Evrópu og Boliver gerir það sama með þá stökkbreyttu. En hann var ekki 180 sentímetra hár, fullkominn, ljóshærður aríi – hann var stuttur og skringilega útlítandi maður!“ segir Singer. Hann segist hafa talað við James Cameron í tvo tíma, leikstjóra myndanna The Terminator og Terminator 2: Judgement Day, um hvernig ætti að láta tímaferðalag virka í myndinni. Töluðu þeir meðal annars um hliðarheima og strengjakenninguna.Hugh Jackman leikur Wolverine í þessari mynd og er þetta í sjöunda sinn sem hann leikur karakterinn í kvikmyndinni. Þar bætir hann sitt eigið met í að leika oftast karakter úr teiknimyndasögu í bíómynd. Hann er einnig eini leikarinn sem leikur í öllum X-Men-myndunum. Í öðrum hlutverkum í myndinni eru Jennifer Lawrence, Michael Fassbender, Ian McKellen, Ellen Page, James McAvoy og Halle Berry.
Game of Thrones Mest lesið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Lífið Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Íhuga að skrifa bók um kaffihúsin á þúsund kílómetra hjólarúnti Lífið Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Lífið Fleiri fréttir Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Óþekkjanleg stjarna Ingvar E. valinn besti leikarinn í Grikklandi Malkovich klipptur út úr Hinum fjóru fræknu Reykjavík Visual Effects tilnefnt til tveggja Emmy-verðlauna Sleðinn úr Citizen Kane orðinn næstverðmætasti leikmunurinn Severance sópar að sér Emmy-tilnefningum Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Djöfullinn klæðist Prada á ný Sjá meira