Hrói höttur stelur senunni Ólöf Skaftadóttir skrifar 20. maí 2014 10:30 Gísli Örn Garðarsson Vísir/Hörður
Sýningin Hrói höttur í uppsetningu Vesturports hefur ferðast víða. Í gær hlaut sýningin þrjár tilnefningar til hinna þekktu Heddu-verðlauna í Noregi og á dögunum fimm tilnefningar til 32nd Annual Elliott Norton Awards í Bandaríkjunum, fyrir bestu sýningu, leikstjórn, dans, leikmynd, búninga og hljóð. Sýningin er leikgerð Davids Farr eftir sögu Hróa hattar, einnar þekktustu þjóðsagnapersónu Englands, sem rændi frá þeim ríku og gaf hinum fátæku, nema í þessari útgáfu rænir hann hina ríku en heldur verðmætunum fyrir sig sjálfan. Listamannateymið samanstendur af Gísla Erni Garðarssyni, sem leikstýrir, meðleikstjóri og danshöfundur er Selma Björnsdóttir, leikmyndahönnuður er Börkur Jónsson, Högni Egilsson semur tónlistina og Björn Helgason er ljósahönnuður sýningarinnar. Vesturport hefur sett sýninguna upp í The Royal Shakespeare Company í Bretlandi, í einu sögufrægasta leikhúsi Norðmanna, Ibsen-leikhúsinu, Den Nationale Scene í Bergen og í The American Repertory Theater í Boston í Massachusetts en leikhúsið var á lista Time Magazine yfir þrjú bestu leikhúsin í Bandaríkjunum árið 2003.
Menning Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira