Meðal umfjöllunarefnis eru breytingin sem nýja safnaðarheimilið skapaði, 200 ára afmæli kirkjunnar 1996 og gagngerar endurbætur á kirkjunni um aldamótin.
„Okkur gafst tækifæri til að efla mjög allt safnaðarstarf um tíma en svo kom kreppan sem breytti því aftur. Þess vegna er myndin dálítið horfin sem verið er að lýsa í bókinni,“ segir séra Jakob Ágúst.
Veigamikinn þátt í starfi Dómkirkjunnar á þessum tíma segir hann líknarstörf og félagslegar aðgerðir, svo sem gegn atvinnuleysi og miðborgarvandanum sem Dómkirkjan tók á með KFUM og KFUK.

Ég tel að þetta sé helsti vandi þjóðkirkjunnar í dag og hans sér víða stað, í minnkuðu æskulýðsstarfi sérstaklega,“ segir séra Jakob Ágúst.
Dómkirkjan í Reykjavík III, Á aldahvörfum er 154 blaðsíður í pappírskilju, prýdd myndum og kemur út í áskrift.
Eintökin verða númeruð eftir því sem áskriftarbeiðnir berast í tölvupósti til domkirkjan@domkirkjan.is. Eintakið mun kosta 5.000 krónur.