Hylla hafið og sjómennskuna Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 3. apríl 2014 16:00
Þeir syngja og syngja, herramennirnir í Hreppunum, undir stjórn Edit Monár við undirleik manns hennar, Miklós Dalmay.Mynd/Einkasafn Nú sigla svörtu skipin, er yfirskrift söngskemmtana sem Karlakór Hreppamanna efnir til á næstunni. Titillinn vísar í lag Karls Ó. Runólfssonar við ljóð Davíðs Stefánssonar og segir sitt um dagskrána. „Stjórnandinn okkar, hún Edit Molnár, er gríðarlega metnaðarfull og ögrar okkur á hverju ári með nýjum og spennandi verkefnum. Við vorum með óperuprógramm í fyrra og fórum með það til Ítalíu, nú er það hafið og sjómennskan sem sungið er um,“ segir Gylfi Þorkelsson, einn kórfélaganna. Spurður hvort það sé ekki sérstakt að sveitakarlar séu uppteknir af því efni svarar hann: „Jú, en Edit veit að mörg af mögnuðustu kórverkum íslenskra tónverka eru um baráttu sjómanna við hafið enda er hún stór þáttur í íslenskri menningu.“ Gylfi segir þeim líka málið skylt því Hreppamaðurinn Sigurður Ágústsson í Birtingarholti hafi samið lag við hið þekkta kvæði Suðurnesjamenn eftir Ólínu Andrésdóttur. Til að gera viðfangsefninu enn betri skil hefur kórinn látið vinna söguleg atriði upp úr frásögnum, ljóðum og þjóðsögum og verða þau fléttuð saman við sönginn. Fyrstu tónleikar Hreppamanna eru í Gamla bíói á sunnudaginn klukkan 20.Gunnþóra Gunnarsdóttir
Menning Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira