Menning

Ljósmyndasýningunni Myndir ársins lýkur

Tvenn verðlaun. Mynd ársins og portrettmynd ársins.
Tvenn verðlaun. Mynd ársins og portrettmynd ársins. MYND: Páll Stefánsson
Sýningunni Myndir ársins 2013 í Gerðarsafni lýkur á sunnudaginn. Á sýningunni eru bestu myndir félaga í Blaðaljósmyndarafélagi Íslands frá árinu 2013, ásamt bestu myndskeiðum fréttatökumanna. Um 1.000 myndir voru sendar inn í myndasamkeppni BLÍ en sex manna dómnefnd valdi þær 160 myndir sem prýða sýninguna. Dómnefnd valdi einnig þær myndir sem þóttu skara fram úr í hverjum flokki auk þess að velja mynd ársins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×