Menning

Carmina Burana klassískt popp

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Það var létt yfir æfingunni sem ljósmyndarinn leit inn á í Langholtskirkju.
Það var létt yfir æfingunni sem ljósmyndarinn leit inn á í Langholtskirkju. Fréttablaðið/Stefán
„Ég þarf að slökkva á útvarpinu. Það má náttúrlega ekki fréttast að virðulegur organisti sé að hlusta á popp á Bylgjunni,“ segir Kári Þormar dómorganisti hlæjandi þegar hringt er í hann vegna tónleikanna Siðlausra söngva sem hann stjórnar tvívegis í Langholtskirkju á morgun.

Þar verður flutt tónverk Carls Orff, Carmina Burana, sem Kári segir reyndar klassíska popptónlist og fjalla um fallvaltleika gæfunnar.

„Þetta er tilraunaverkefni,“ segir Kári. „Við erum með Dómkórinn í Reykjavík og kór Menntaskólans í Reykjavík, um 45 manns í hvorum hópi og þriðja kynslóðin er drengir úr Skólakór Kársnes,“ lýsir hann og segir hafa heppnast vel að steypa þessum kórum saman. Það sé ekkert sjálfgefið.

Alls taka yfir 100 manns þátt í flutningnum. Með kórunum syngja einsöngvararnir Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Þorbjörn Rúnarsson tenór og Jón Svavar Jósefsson bassabaritón og undirleikur er í höndum píanóleikaranna Helgu Bryndísar Magnúsdóttur og Kristins Arnar Kristinssonar auk sex manna slagverkssveitar.

Kári er stjórnandi Dómkórsins og MR-kórsins og segir forna hefð fyrir samstarfi þeirra.

„Pétur Guðjohnsen, fyrsti dómorganistinn, sem fæddist fyrir um 200 árum, var fyrsti söngkennari Lærða skólans, forvera MR. Martin Hunger dómorgainsti endurreisti svo kór MR á sínum tíma og tengir í raun þessa þrjá kóra saman því hann studdi líka vel við Kársneskórinn sem konan hans, hún Þórunn Björnsdóttir, stjórnar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×