Taka áheyrendur í tímaferð til Köben Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 6. mars 2014 11:00 Í tilefni af tónleikunum teiknaði Halldór Baldursson mynd af Hallgrími Péturssyni eins og hann ímyndar sér að hann hafi litið út sem ungur maður.
Hvaða tónlist heyrði Hallgrímur Pétursson á skólaárum sínum í Kaupmannahöfn? Þeirri spurningu hyggst Mótettukórinn svara á tónleikum sínum í Hallgrímskirkju á sunnudaginn klukkan 17. Auk þess að syngja vel þekkta Hallgrímssálma býður kórinn áheyrendum í tímaferð til Kaupmannahafnar á fjórða áratug 17. aldar þegar hinn óharðnaði skagfirski unglingur gekk um götur borgarinnar. „Eftir að sú hugmynd kom upp að leita að tónlist sem Hallgrímur hefði ungur heyrt í Kaupmannahöfn, í þeirri trú að hún hefði mótað hann sem listamann að einhverju leyti, fundum við gríðarlega fallega tónlist eftir samtímamenn hans; Danina Mogens Pedersøn og Thomas Schattenberg og Þjóðverjann Heinrich Schütz sem var eitt af stærstu tónskáldum snemmbarokksins í Þýskalandi. Við lifum á þannig tímum að hægt er að finna upptökur og nótur á netinu sem mann hefði ekki órað fyrir að komast í tæri við,“ segir Hörður Áskelsson, stjórnandi Mótettukórsins, og tekur fram að miklir snillingar sitji í verkefnavalsnefnd kórsins. Hörður segir dönsk tónskáld hafa verið send af kónginum suður í Evrópu til menntunar á sautjándu öld. „Mogens Pedersøn, sem á býsna drjúgan hlut í þessari efnisskrá, lærði í Feneyjum sem var á þessum tíma mekka kirkjutónlistarinnar. Heinrich Schütz lærði þar líka og var undir sömu áhrifum. Hann var ein þrjú ár í Kaupmannahöfn á sama tíma og Hallgrímur og mjög líklega með skólapiltunum sem Hallgrímur var einn af. Þess vegna eru allar líkur á að þeir hafi hist,“ segir hann og telur engan vafa á að Hallgrímur hafi stundað messur í Frúarkirkjunni og tekið þátt í þeim. Hörður segir 17. aldar efnið sem Mótettukórinn flytur á tónleikum sunnudagsins listilega vel skrifaða kórtónlist í snemmbarokkstíl. Á Íslandi hafi hins vegar ekki þekkst raddaður söngur á þeim tíma.„Okkur finnst þetta afar skemmtileg stúdía, alger gæsahúðarupplifun,“ segir Hörður Áskelsson um rannsóknir Mótettukórsins á samtímatónlist Hallgríms.Anton Brink„Hryggjarstykkið í efnisskránni er tónsetning í latneskri messu eftir Mogens Pedersøn. Svo byggjum við kringum hana alls konar tónlist við texta Hallgríms. Meira að segja útsetningar Pedersøns á þeim lögum sem Hallgrímur orti sálma sína við. Okkur finnst þetta afar skemmtileg stúdía, alger gæsahúðarupplifun,“ segir Hörður sem tekur fram að fleira skemmtilegt sé á prógramminu. „Eins og áður sagði eru vel þekkt lög og útsetningar íslenskra tónskálda við sálma Hallgríms líka á dagskránni, svo sem eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Jón Nordal og Jón Hlöðver Áskelsson, verk sem hafa fylgt Mótettukórnum um árabil. Við erum líka að frumflytja fjögur lög við texta Hallgríms, þrjú eftir Halldór Hauksson við sjaldséða sálma og nýtt lag Hreiðars Inga Þorsteinssonar við hinn alþekkta andlátssálm Allt eins og blómstrið eina.“ Hallgrímur Pétursson (1614–1674) hóf nám við Frúarskóla í Kaupmannahöfn átján ára gamall og sat þar á skólabekk þangað til þau Guðríður Símonardóttir felldu hugi saman og sneru heim til Íslands. Kaupmannahöfn var í örum vexti undir stjórn Kristjáns IV. og menningarlíf í áður óþekktum blóma, ekki síst tónlistin. Hallgrímur kynntist því nýjustu tónlistarstraumum Evrópu, ekki aðeins sem áheyrandi, heldur að öllum líkindum einnig sem söngvari, en skólapiltar í latínuskólanum fengu tilsögn í tónlist og sungu í kór Frúarkirkju, dómkirkju Kaupmannahafnar.
Menning Mest lesið Brynjar skiptir Aroni út Lífið Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi Lífið Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Lífið Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Lífið Kveða orðróminn í kútinn: „Það eru engar deilur“ Lífið Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu Lífið Hvað í ósköpunum gerði James Bond á Íslandi? Leikjavísir Unga fólkið sækir í svissnesk TAG Heuer Lífið samstarf Romeo Beckham og Kim Turnbull sögð hætt saman Lífið „Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“ Tónlist Fleiri fréttir Verðlaunaleikstjóri leikstýrir jólasýningu Þjóðleikhússins Krimmi Elizu Reid á toppnum annan mánuðinn í röð Áslaug Arna, Dóri DNA og Frikki Dór í listapartýi Þjóðin virðist tengja við streituna Birta Sólveig fer með hlutverk Línu Langsokks Emilíana og Víkingur Heiðar meðal tólf tilnefndu Listrænn stjórnandi Bolshoj-ballettsins til margra áratuga látinn Ungfrú Ísland með flestar tilnefningar Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Eliza Reid efst á bóksölulistanum Opnaði sumarið með sólríkum stæl Eitt merkilegasta verk 21. aldarinnar á Íslandi Blautir búkar og pylsupartí Mæðgin á stóra sviðinu í Feneyjum með íslenskan arkitektúr Sjá meira