Atli Ævar frábær í sigri í Íslendingaslag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. desember 2014 19:40 Atli Ævar Ingólfsson. Mynd/Fésbókarsíða Eskilstuna Guif
Atli Ævar Ingólfsson átti flottan leik með Eskilstuna Guif í kvöld í tveggja marka heimasigri á Ricoh, 31-29, í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta. Guif lenti sex mörkum undir í byrjun seinni hálfleiks en leikmenn liðsins komu sterkir til baka og unnu síðustu 27 mínútur leiksins með átta mörkum, 17-9. Atli Ævar var markahæstur í liði Eskilstuna Guif með tíu mörk úr aðeins tólf skotum en hann skoraði fimm af mörkum sínum af vítalínunni. Tandri Már Konráðsson skoraði 4 mörk og gaf átta stoðsendingar fyrir Ricoh. Þetta var mikilvægur sigur fyrir lærisveina Kristjáns Andréssonar í Eskilstuna Guif en liðið var fyrir leikinn búið að tapa þremur af síðustu fjórum leikjum sínum. Ricoh hefur verið á góðu skriði og átti möguleika að komast í hóp átta bestu liða deildarinnar með sigri. Tandri Már kom Ricoh fjórum mörkum yfir, 17-13, með því að skora tvö mörk í röð undir lok hálfleiksins en Atli Ævar skoraði lokamarkið í fyrri hálfleik og minnkaði muninn í 17-14. Tandri Már skoraði 3 mörk og gaf 5 stoðsendingar í fyrri hálfleiknum en Atli Ævar nýtti 4 af 5 skotum sínum í hálfleiknum. Ricoh komst mest sex mörkum yfir í upphafi seinni hálfleiksins, 20-14, en Guif-liðið kom til baka og Atli Ævar jafnaði metin í 24-24 rúmum fimmtán mínútum fyrir leikslok. Atli Ævar kom Guif líka í fyrsta sinn tveimur mörkum yfir, 27-25, þegar rúmar tíu mínútur voru eftir.
Handbolti Mest lesið Mundi ekki eftir öðrum eins áverkum og á fórnarlambi Conors Sport Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Fótbolti Óþekkjanlegur Adriano: „Ég drekk á hverjum degi“ Fótbolti Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? Handbolti Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Handbolti Hætt eftir drónaskandalinn Fótbolti Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Handbolti Keflavík semur við leikmann sem hefur skorað tvö stig í úrslitaeinvígi NBA Sport Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Enski boltinn Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leik lokið: Haukar - Fram 20-28 | Framkonur öflugar Einar Bragi öflugur í stórsigri Kristianstad Þórey Anna minnti á sig í 35. sigri Valskvenna í röð Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? „Það er erfitt að færa þessar fregnir“ Nýja mamman „hefði þurft 1-2 mánuði í viðbót“ Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“ Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Sjá meira