Spá miklu illviðri síðdegis á sunnudag og fram á mánudag Atli Ísleifsson skrifar 28. nóvember 2014 12:21 Gert er ráð fyrir meðalvindhraða víða á bilinu 18 til 25 m/s síðdegis á sunnudag. Vísir/Pjetur
Spár Veðurstofunnar gera ráð fyrir að hraðfara og dýpkandi lægð nálgist landið sunnan úr höfum á sunnudag með vaxandi suðaustanátt. Gert er ráð fyrir meðalvindhraða víða á bilinu 18 til 25 m/s síðdegis. Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að suðaustanáttinni fylgi rigning eða slydda og sé útlit fyrir talsverða úrkomu sunnan og vestanlands. Útlit er fyrir þíðu á láglendi, en líkur á að það verði slydda eða snjókoma á heiðum og fjöllum. „Á sunnudagskvöldið verður lægðin á norðurleið skammt vestan við landið og sunnan við hana er mikill vindstrengur. Á sunnudagskvöldið og aðfaranótt mánudags mun þessi strengur herja á landið. Má búast við vestan og suðvestan 20-30 m/s á suður helmingi landsins um kvöldið, en norðantil aðfaranótt mánudags. Með vestanáttinni kólnar og færir úrkoman sig yfir í að vera á formi snjóélja. Það er semsagt búist við að meðalvindhraði geti farið yfir 28 m/s sem kallast ofsaveður skv. vindstigakvarða Beufort sem lengi var við lýði. Búast má við hættulegum vindhviðum og að þær geti náð yfir 50 m/s við fjöll, þá einkum norðan og austan þeirra. Á mánudagsmorguninn er gert ráð fyrir suðvestan stormi (18-25 m/s), en allhvass eða hvass vindur síðdegis (13-20 m/s). Útlit er fyrir éljagang, en að létti til norðaustan- og austanlands. Þá kólnar í veðri, hiti um og undir frostmarki þegar kemur fram á daginn. Af ofansögðu er ljóst að spáð er vonskuveðri síðdegis á sunnudaginn og fram á mánudag og mjög slæmt ferðaveður. Þessi tilkynning er unnin með aðstoð tölvuspáa með greiningartíma kl. 00 á föstudag. Veðurspár verða að jafnaði áreiðanlegri eftir því sem þær eru styttra fram í tímann. Þegar ný gögn berast eru spár uppfærðar og má sjá þær m.a. á vef Veðurstofunnar. Taka skal fram að þegar mismunur er á textaspám og sjálfvirkum spám (staðaspár, veðurþáttaspár) þá gildir textaspáin. Eftir tiltölulega rólegan og mildan nóvembermánuð er nú veður á Íslandi að skipta um gír og benda spár til að veður verði órólegt út næstu viku,“ segir í tilkynningunni.Hvetur fólk til að gera ráðstafanir Slysavarnafélagið Landsbjörg brýnir fyrir fólki að gera ráðstafanir svo hægt sé að koma í veg fyrir tjón og óþægindi er vilja fylgja slíkum veðurofsa. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar verða í viðbragðsstöðu um land allt meðan veðrið gengur yfir. Þurfi fólk á aðstoð þeirra að halda má hringja í Neyðarlínuna – 112 eftir hjálp. Í tilkynningu frá Landsbjörg má finna ráð fyrir almenning varðandi undirbúning fyrir óveður í líkingu við það sem von er á. „Þegar sterkur vindur gengur yfir skapast mesta hættan þegar lausir hlutir fjúka. Því er mikilvægt gæta þess að festa þá vel og tryggilega eða koma þeim fyrir innandyra. Við flest íbúðarhús er um að ræða hluti í garði og á svölum, svo sem garðhúsgögn, grill, hitara og trampólín. Fari þessir hlutir af stað er hætta á að þeir lendi á rúðum og brjóti þær eða skemmi bifreiðar. Fullvissið ykkur öllum gluggum og dyrum sé vel lokað. Brotni rúða skal heimilisfólk yfirgefa herbergið, loka dyrum og hringja eftir aðstoð björgunarsveita í síma Neyðarlínunnar -112. Gangið úr skugga um að þakplötur séu tryggilega festar, einnig þakrennur, grindverk og annað. Húsbyggjendur ættu að sýna sérstaka varkárni í þeim efnum. Tryggið að hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagnar og dráttarkerrur séu í skjóli við ríkjandi vindátt og að kyrfilega sé gengið frá þeim. Séu varúðarráðstafanir gerðar aukast líkur á að þessi djúpa lægð fari yfir landið án þess að skapa teljandi vandkvæði.“
Veður Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Hnífjafnt í síðustu könnuninni Innlent Fleiri fréttir Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sjá meira