Iker Casillas vill fá treyjuna hans Balotelli í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2014 18:15 Mario Balotelli. Vísir/Getty
Mario Balotelli hefur ekki beinlínis farið á kostum með liði Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu og er kannski ekki líklegur til afreka í kvöld þegar liðið mætir spænska stórliðinu í Real Madrid á útivelli í fjórðu umferð Meistaradeildarinnar. Þrátt fyrir markaleysi og endalausa gagnrýni þá er treyja Mario Balotelli ennþá eftirsótt í búningsklefanum hjá spænsku Evrópumeisturunum. Mario Balotelli var harðlega gagnrýndur fyrir það að skiptast á treyjum við Pepe í hálfleik á fyrri leiknum á Anfield en nú vilja fleiri komast yfir "Balotelli númer 45". Iker Casillas viðurkenndi í viðtali við Daily Mail að hann ætlaði sér að skipta um treyju við Mario Balotelli eftir leikinn í kvöld. Balotelli lærir örugglega af "mistökum" sínum í fyrri leiknum og skiptir ekki um treyju fyrr en eftir leik. Svo er að sjá til hvort Iker Casillas vilji ennþá skipt um treyju við Mario Balotelli takist ítalska framherjanum að skora hjá honum í leiknum. Balotelli hefur oft mætt einbeittur í risastóru leikina og það væri í hans stíl að setja hann á heimavelli Evrópumeistaranna. Leikur Real Madrid og Liverpool hefst klukkan 19.45 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og Stöð 2 Sport HD.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira