Nýjasta nýtt í titrurum sigga dögg skrifar 10. nóvember 2014 11:00 Ekki er gott að gleyma snípnum í örvun píkunnar. Mynd/Skjáskot
Kynlífstækjaiðnaðurinn er stór og mikill og gjarnan má finna þar tæki sem annað hvort líkjast stórum lim, litlu eggi eða jafnvel einhverju úr dýraríkinu. Hönnuðir hafa lengi reynt að hann tæki sérstaklega fyrir píkur enda voru kynlífstæki mikilvæg í kynferðislegri upplifun kvenna og með tilkomu þeirra styttist tíminn sem það tók að fá fullnægingu hjá mörgum. Nú eru komin ýmis tæki sem eiga að líkja eftir munnmökum við píkur auk tækja sem örva snípinn en er hægt að hafa inni í leggöngum við örvun eða utan á börmunum.Nýr titrari sem er ókominn á markaðinnMynd/SkjáskotEinn nýr titrari sem er ókominn á markað (en væntanlegur því þau hafa náð að fara vel yfir fjáröflunarmarkmiði sínu) heitir Eva og miða að því að liggja á snípnum á meðan kynlíf er stundað. Titrarinn er festur með því að litlum öngum eða vængjum er klemmt sitthvoru megin við barmana. Vissulega er hægt að nota titrarann í sjálfsfróun en einnig í kynlífi með bólfélaga. Nánari upplýsingar eru á fjáröflunar vefsíðu græjunnar. Annað slíkt tæki sem hefur verið á markaði í nokkur ár er „skeifan“ eða „straujárnið“ eins og það hefur einnig verið kallað. Það fer inn í leggöngum og er hugsað til að nota í samförum við lim á meðan titrarinn liggur upp að snípnum. Það er mælt sérstaklega með notkun sleipiefna þegar þessi titrari er notaður í samförum og eins og með allt þá er ekkert eitt sem hentar öllum.Handfrjáls titrari
Heilsa Mest lesið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Lífið Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Offset skotinn við spilavíti í Flórída Lífið Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Bíó og sjónvarp