Dóra ætlar að deila visku sinni á þessu sviði með fleirum á næstunni, en námskeiðið Eldað úr öllu með kvenfélögunum og Dóru verður kennt um land allt á næstunni.
Næsta námskeið verður í Reykjavík þann 30.október næstkomandi en allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Leiðbeiningarmiðstöðvar heimilanna.
Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá nokkur góð ráð frá Dóru sem ættu að hjálpa okkur við að sporna gegn matarsóun. Þar má til dæmis sjá hvernig við getum nýtt ferskar kryddjurtir, sem eiga það til að skemmast í ískápnum hjá okkur og hvað við getum gert við banana sem eru farnir að taka brúnan lit.
Annað gott ráð sem Dóra lumar á er að kaupa krydd í fræformi þegar það á við. Það geymist miklu betur en malað krydd. Fræin eru svo ristuð þegar við ætlum að nýta þau í matseld og svo hökkuð í mortéli.