Ronaldo kominn með 25 þrennur fyrir Real Madrid | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. september 2014 10:58
Real Madrid vann öruggan 5-1 sigur á Elche á heimavelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.Cristiano Ronaldo var einu sinni sem oftar á skotskónum fyrir Real Madrid í kvöld. Portúgalinn byrjaði þó ekki vel en hann fékk á sig vítaspyrnu á 15. mínútu sem Edu Albácer skoraði úr. Aðeins fimm mínútum síðar jafnaði Gareth Bale metin með skalla eftir fyrirgjöf James Rodríguez og á 28. mínútu kom Ronaldo Madrid yfir úr vítaspyrnu sem Brasilíumaðurinn Marcelo nældi í. Marcelo átti svo fyrirgjöf á Ronaldo sem skoraði þriðja mark Madrid á 32. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Ronaldo fullkomnaði þrennuna á 80. mínútu úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur. Fjórða mark Portúgalans og fimmta mark Evrópumeistaranna kom svo í uppbótartíma eftir sendingu frá Bale. Ronaldo skoraði einnig þrennu gegn Deportivo La Coruna í síðustu umferð og er því kominn með sjö mörk í síðustu tveimur leikjum. Þetta var 25. þrennan sem Ronaldo skorar fyrir Real Madrid síðan hann kom til félagsins frá Manchester United sumarið 2009. Mörkin sem Ronaldo skoraði í kvöld má sjá í spilaranum hér að ofan.
Spænski boltinn Tengdar fréttir Ronaldo með 24 þrennur fyrir Real og nálgast fullt af markametum Portúgalski framherjinn búinn að skora 260 mörk í 253 leikjum fyrir spænska stórliðið. 23. september 2014 13:00 Real skoraði átta gegn nýliðunum Cristiano Ronaldo og félagar kjöldrógu nýliða Deportivo í spænsku úrvalsdeildinni. 20. september 2014 00:01 Sjáðu markasúpuna hjá Real Madrid Real Madrid gjörsamlega keyrði yfir nýliða Deportivo í dag, en lokatölur urðu 2-8. Ótrúlegar tölur. 20. september 2014 17:15 Mest lesið Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Handbolti „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Fótbolti Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock Handbolti Engin Meistaradeild hjá Hákoni Arnari Fótbolti Dagskráin í dag: Tryggir Tindastóll titilinn? Sport Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Handbolti „Ég ætla að leyfa stelpunum að njóta í kvöld“ Handbolti Willum nýr forseti ÍSÍ með algjörum yfirburðum Sport Fleiri fréttir Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Engin Meistaradeild hjá Hákoni Arnari „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Stórsigur Stólanna í Víkinni Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Sjálfum okkur verstar” Glæsimark frá Úlfu tryggði Stjörnunni stigin þrjú Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Dortmund náði sætinu á síðustu stundu Uppgjörið: Fram - Þór/KA 1-3 | Tvö mörk frá Söndru Maríu í sigri Þór/KA Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni „Verður stærsti dagur ævi minnar“ „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenskt mark, sjálfsmark og rautt spjald Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Aron á að hjálpa leikmönnum að hugsa ekki um ströndina Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Svona var blaðamannafundur Arnars Aron Einar með en enginn Gylfi Þróttur mætir bikarmeisturunum Sjá meira
Ronaldo með 24 þrennur fyrir Real og nálgast fullt af markametum Portúgalski framherjinn búinn að skora 260 mörk í 253 leikjum fyrir spænska stórliðið. 23. september 2014 13:00
Real skoraði átta gegn nýliðunum Cristiano Ronaldo og félagar kjöldrógu nýliða Deportivo í spænsku úrvalsdeildinni. 20. september 2014 00:01
Sjáðu markasúpuna hjá Real Madrid Real Madrid gjörsamlega keyrði yfir nýliða Deportivo í dag, en lokatölur urðu 2-8. Ótrúlegar tölur. 20. september 2014 17:15