64 sm bleikja úr Varmá og vænir sjóbirtingar Karl Lúðvíksson skrifar 11. september 2014 11:14 64 sm bleikjan sem Ómar fékk í Varmá Mynd: Ómar Smári
Þá er loksins farið að bera á góðum göngum af sjóbirting á þeim slóðum þar sem hann er algengastur og fréttir farnar að berast af aflabrögðum. Það á eftir að bera á auknum fréttum af sjóbirtingsslóðum á vefnum enda er sá tími að renna í garð þar sem veiðimenn sækja í árnar þar sem stórir birtingar liggja. Árnar þurfa þó ekki alltaf að vera stórar eða langt í burtu til að vera góðar en við höfum áður nefnt þær ár sem eru í næsta nágrenni Reykjavíkur sem hafa sterka sjóbirtingsstofna. Þeirra á meðal er Varmá sem rennur í gegnum Hveragerði. Ómar Smári Óttarsson var þar í fyrradag og það verður ekki annað sagt en að honum hafi gengið vel en á meðal fiska sem hann landaði var 64 sm bleikja en svoleiðis stórfiskar eru orðnir ansi algengir í ánni. Ómar sendi nokkrar línur þar sem hann segir frá þessum góða degi:Það gekk bara ágætlega í Varmá. Ég var við veiðar í svona 3 tíma og ég prufaði Stöðvarbreiðu, Reykjarfoss, Frost og Funa og Gólfhylinn. Fyrsti fiskurinn kom á land í Gólfhylnum en það var 53 cm sjóbirtingur sem var alveg brjálaður. Hann tók í fyrsta kasti þýska snældu og það var frábær barátta. Ég hélt fyrst að ég væri með svona 8 - 10 punda fisk á. Ég var með sjöuna mína og hún var alveg í rugli en síðan eftir svona 10 min kom hann á land flottur sjóbi. Síðan var prufað að kasta í Reykjarfoss. Ég kom að fossinum og sá strax fisk stökkva svona, 10 punda lax, síðan strax á eftir alveg risa birtingur. Ég kastaði og kastaði en það bara gerðist ekkert. Þá fór ég á Stöðvarbreiðu og ég byrjaði bara á að kasta púpu en ekkert gerðist. Þá prufaði ég hvítan Nobbler án árangurs. Þá setti ég undir þýska snældu eins og ég gerði í Gólfhylnum og strax í fyrsta kasti var tekið og það var þung taka. Svo stökk bleikjan! Spikfeit belja sem ekkert var hægt að ráða við. En eftir góðar 15 min náði ég bleikjunni á land og var hún 64 cm og spikfeit. Ég var heldur betur sáttur með daginn. Varmáinn er alveg pökkuð af fiski.
Stangveiði Mest lesið Fín veiði við Ölfusárós Veiði Veiðin hefst á fimmtudaginn Veiði Laxarnir farnir að bylta sér í Blöndu og Norðurá Veiði Sjókvíaeldi mótmælt við Austurvöll á morgun Veiði Ágæt byrjun lofar góðu í laxveiðiánum Veiði Veiðisumarið yfir meðallagi Veiði Loksins tekur Elliðavatn við sér Veiði Fín byrjun á fyrsta degi í Hítarvatni Veiði Óþolandi sóðaskapur við ár og vötn Veiði Vann kappræður um seiðasleppingar og ræktun laxveiðiáa Veiði