Tveir ísraelskir hermenn féllu í hörðum bardögum við landamæri Randver Kári Randversson skrifar 19. júlí 2014 22:38 Ísraelskir hermenn við landamærin að Gaza. Vísir/AFP
Tveir ísraelskir hermenn féllu í átökum við Hamas-liða á Gaza í dag, en hörð átök hafa verið við landamæri Ísraels og Gaza. Á vef Sky News kemur fram að tveir ísraelskir hermenn hafi fallið í átökum við Hamas-liða sem komu úr göngum frá Gaza-ströndinni. Hamas samtökin greindu fyrr í dag frá því að hermenn þeirra væru komnir á bak við varnarlínu Ísraelshers og ættu í hörðum skotbardögum. Ísraelar hafa lýst því yfir að helsta markmiðið með innrásinni væri að eyðileggja göng sem Hamas-liðar hafa notað til að komast inn á ísraelskt landsvæði. Herinn tilkynnti í dag að 13 slík göng hafi fundist frá því innrásin hófst. Einnig segist herinn hafa skotið á 2350 skotmörk á Gaza, þar af 1100 flugskeytaskotpallar á undanförnum 12 dögum. Innrásin hefur þó ekki orðið til þess að stöðva flugskeytaárásir Hamas á Ísrael, en um 90 flugskeytum var skotið frá Gaza að Ísrael í dag. Þrír ísraelskir hermenn hafa nú fallið frá því innrásin hófst á Gaza, auk þess sem tveir ísraelskir borgarar hafa fallið. Á sama tíma segja yfirvöld á Gaza að fjöldi fallinna Palestínumanna sé nú kominn í 335, þar af séu 70 börn. Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna er á leið til svæðisins í von um að geta miðlað málum í deilunni. Ísraelsmenn hafa lýst því yfir að innrásin gæti staðið yfir í allt að tvær vikur.
Gasa Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira