Myndin hlaut þrenn verðlaun en flest verðlaun fóru til vísindaskáldsögunnar Gravity, en aðstandendur hennar fóru heim með heilar sjö styttur.
Það var leikkonan Cate Blanchett sem var valin besta leikkona í aðalhlutverki fyrir myndina Blue Jasmine en Matthew McConaughey var valinn besti leikari í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í Dallas Buyers Club
Í aukahlutverkum voru það þau Jared Leto úr Dallas Buyers Club og leikkonan Lupita Nyong'o sem þóttu best.
Leto hélt langa þakkarræðu og talaði meðal annars mikið um móður sína.
„Árið 1971 var unglingsstúlka í Louisiana ólétt af sínu öðru barni. Hún hafði hætt í skóla og var einstæð móðir. Einhvern veginn náði hún að skapa sér og börnum sínum betra líf. Sú stúlka er móðir mín og hún er hér í kvöld. Ég vil bara segja: „Ég elska þig mamma og takk fyrir að kenna mér að dreyma,“ sagði leikarinn meðal annars þegar hann tók við verðlaununum. Þá þakkaði hann líka bróður sínum og minntist á hrikalegt ástand í Úkraínu og Venesúela. „Við hugsum til ykkar í kvöld.“

„Já! Ég veit að mikil gleði í mínu lífi er sprottin úr sársauka annarra,“ sagði hún og þakkaði meðal annars meðleikara sínum Michael Fassbender. „Þú ert kletturinn minn.“
Hún lauk síðan ræðunni á þessum orðum:
„Þegar ég lít á þessa gylltu styttu minnir hún mig á að draumar eru gildir, sama hvaðan maður er.“
Ástralski búningahönnuðurinn Catherine Norris hlaut verðlaun fyrir bestu búningana fyrir The Great Gatsby. Hún er eiginkona leikstjórans Baz Luhrmann og þakkaði honum í ræðunni. Kvikmyndin hlaut einnig verðlaun fyrir leikmyndahönnun. Þá var förðun og hár í kvikmyndinni Dallas Buyers Club verðlaunað.
Verðlaun fyrir bestu teiknuðu stuttmynd hlaut Mr. Hublot. Besta teiknimyndin í fullri lengd var hins vegar Frozen. Lagið Let It Go, eftir Kristen Anderson-Lopez og Robert Lopez, úr Frozen var valið besta lagið.

Helium var valin besta stuttmyndin. Besta heimildarstuttmyndin var hins vegar The Lady in Number 6: Music Saved My Life. Besta heimildarmyndin var 20 Feet From Stardom.
The Great Beauty frá Ítalíu hlaut verðlaun sem besta erlenda myndin.
Kvikmyndin Gravity fékk verðlaun fyrir bæði bestu hljóðblöndun og bestu hljóðklippingu.

John Ridley var verðlaunaður fyrir handrit myndarinnar 12 Years a Slave. Þá fékk Spike Jonze verðlaun fyrir besta frumsamda handritið fyrir kvikmynda Her sem hann leikstýrði einnig.

Þá þakkaði hann fjölda fólks, þar á meðal Söndru Bullock sem fór með aðalhlutverkið í myndinni.
„Sandy, þú ert Gravity. Þú ert sála og hjarta myndarinnar. Þú ert ein besta manneskja sem ég hef hitt.“

„Setjist! Þið eruð of gömul til að standa!“
Þá þakkaði hún leikstjóra myndarinnar Woody Allen.
„Takk fyrir að ráða mig Woody. Ég met það mikils,“ sagði Cate og rómaði síðan hinar leikkonurnar sem tilnefndar voru í flokknum - Amy Adams, Söndru Bullock, Meryl Streep og Judi Dench.

„Ég vil þakka Guði. Ég lít upp til hans. Hann hefur gefið mér tækifæri og sýnt mér að það er vísindaleg staðreynd að þakklæti er endurgoldið. Ég vil þakka fjölskyldunni minni, ég hlakka til hennar. Ég vil þakka hetjunnar minnar sem ég elti. Það er ég eftir tíu ár. Ég verð aldrei hetja, ég veit það. Ég er sáttur við það, þá hef ég einhvern til að elta.“

Besta kvikmynd
12 Years a Slave
Besta leikkona í aðalhlutverki
Cate Blanchett (Blue Jasmine)
Besti leikari í aðalhlutverki
Matthew McConaughey (Dallas Buyers Club)
Besta leikkona í aukahlutverki
Lupita Nyong'o (12 Years a Slave)
Besti leikari í aukahlutverki
Jared Leto (Dallas Buyers Club)
Besti leikstjóri
Alfonso Cuarón (Gravity)
Besta frumsamda handrit
Her (Spike Jonze)
Besta handrit byggt á áður útgefnu efni
12 Years a Slave (John Ridley)
Besta lag
Let it Go (Frozen)
Besta kvikmyndatónlist
Steven Price (Gravity)
Besta listræna stjórnun
The Great Gatsby
Besta klipping
Gravity
Besta kvikmyndataka
Gravity
Besta hljóðklipping
Gravity
Besta hljóðblöndun
Gravity
Besta erlenda kvikmynd
La grande bellezza (Ítalía)
Besta heimildarmynd í fullri lengd
Twenty Feet from Stardom
Besta stutta heimildarmynd
The Lady In Number 6
Besta leikna stuttmynd
Helium
Besta stutta teiknimynd
Mr Hublot
Besta teiknimynd í fullri lengd
Frozen
Bestu tæknibrellur
Gravity
Besta hár og förðun
Dallas Buyers Club
Besta búningahönnun
The Great Gatsby