Formúla 1

Lotus tapaði á að sleppa Jerez

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Grosjean í Lotus-bílnum.
Grosjean í Lotus-bílnum. vísir/getty
Nick Chester, tæknistjóri Lotus-liðsins, gerir ráð fyrir að liðið verði komið aftur meðal þeirra fremstu í þriðju keppni tímabilsins. Allt veltur á því að leysa vélavandamálin sem hrjá Renault-vélina sem er í Lotus-bílnum.

Lotus liðið sleppti æfingavikunni í Jerez sem var sú fyrsta af þremur fyrir tímabilið. Liðið hefur því ekki haft eins mikinn tíma til að kynnast bíl sínum og önnur lið. Lotus fer því til Ástralíu með alvarlegar áhyggjur af áreiðanleika bílsins og vélarinnar.

Chester vill ekki kenna vanþekkingu á nýju Renault-vélinni um vandræði liðsins. Hann segir að skortur á vitneskju um hvernig vélin og bíllinn vinna saman sé alvarlegasti vandinn.

Gripið sem bíllin hefur er alls ekki slæmt miðað við allar þær breytingar sem hafa átt sér stað. Rafkerfið sem endurnýtir orkuna sem annars væri sóað hefur strítt liðsmönnum Lotus að undanförnu. Chester segir að kerfið bregðist ekki alltaf eins við. Það skapar vandamál við uppstillingu og akstur bílsins og er afar tímafrekt viðfangsefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×