Smitsjúkdómar í Evrópusambandinu Frosti Logason skrifar 24. febrúar 2014 15:53 MYND/Pjetur
Á meðal andstæðinga aðildar Íslands að Evrópusambandinu eru víst einhverjir sem telja þingmanninn Vigdísi Hauksdóttur hafa fengið á sig mikla og óverðskuldaða gagnrýni undanfarið. Þar eru margir ósammála því að Vigdís hafi gert málstaðnum ógagn með því að fara ítrekað með staðlausa stafi í fjölmiðlum og telja sumir þvert á móti að hún eigi heiður skilin fyrir vasklega framgöngu í nafni fullveldis. Vigdís lætur heldur engan bilbug á sér finna. Í dag benti hún á enn eina hættuna sem af Evrópusambandinu stafar. Nefnilega smitsjúkdóma í Grikklandi. -hræðilegar fréttir berast frá Grikklandi: "Martin McKee, prófessor í evrópskri lýðheilsu og einn af höfundum skýrslunnar, segir við breska blaðið The Independent að fyrir utan malaraíu hafi komið til sögunnar á ný í Grikklandi margir smitsjúkdómar sem tekist hafi að halda í skefjum undanfarin 50 til 60 ár með öflugum aðgerðum í þágu lýðheilsu." segir Vigdís á Facebook síðu sinni og hlekkjar við grein af vef Evrópuvaktarinnar sem bendir á að Evrukreppan hafi leitt til „hamfara“ í grískum heilbrigðismálum.
Harmageddon Mest lesið Trúleysi gerir tónlist góða Harmageddon Of Monsters And Men eru byrjuð að vinna að nýju efni Harmageddon Eins og djúsí Big Mac með stórum frönskum Harmageddon Segir heimsbyggðina standa í þakkarskuld við Snowden Harmageddon Sannleikurinn: Hanna Birna segir af sér vegna leka Harmageddon „Listamenn eru ekki að græða neitt“ Harmageddon Hleypur á snærið hjá Bílastæðasjóði Harmageddon Púlsinn 18.ágúst 2014 Harmageddon Magnað myndband frá Úlfi úlfi Harmageddon Sannleikurinn: Fjárlagafrumvarpið fær 2 stjörnur Harmageddon