Sannleikurinn: Ráðherrar fá sérþjálfaða öryggisverði Andri Þór Sturluson skrifar 18. september 2013 11:00 Hanna Birna, innanríkisráðherra, verður fyrst ráðherra til að fá sinn eigin ökulífvörð.
Bílstjórar ráðherra munu nú jafnframt sinna hlutverki öryggisvarðar ráðherra. Er þetta liður í undirbúningi ríkisstjórnarinnar fyrir væntanleg vonbrigði kjósenda hennar þegar í ljós kemur að loforðin um leiðréttingu skulda verða ekki uppfyllt. Ríkislögreglustjóri hefur þegar auglýst eftir lögreglumanni á innri vef lögreglunnar sem mun hafa það hlutverk að vera bílstjóri innanríkisráðherra, en mun líka geta varið ráðherra fyrir þeim sem skulda eitthvað í húsnæðinu sínu. Í auglýsingunni segir að viðkomandi verði starfsmaður hjá ríkislögreglustjóra og þurfi að undirgangast sérstaka þjálfun vegna starfsins, eins og þjálfun í að opna dyr, segja blaðamönnum að hypja sig og panta girnilegt hráfæði til að taka með á lífrænt vottuðum veitingastöðum. Samkvæmt upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu verður bifreið ráðherra lítillega breytt en atvik hafa komið upp sem gefið hafa tilefni til þess að skoða öryggismál, svo sem árásir á ráðherrabíla í hruninu. En frægt er þegar Hallgrímur Helgason, rithöfundur, bankaði á húddið á bifreið Geirs H. Haarde með þeim afleiðingum að lakkið rispaðist næstum því. Í nýju reglugerðinni um öryggismál ráðherra sem samþykkt var nýlega segir um ráðherrabíla: „Bifreiðin skal vera sérútbúin með öryggiskerfi tengt miðstöð Securitas og staðsetningarbúnaði og þola að hent sé í hana bæði ávöxtum og grænmeti, einnig eggjum. Slíkri bifreið skal að jafnaði ekið af sérstökum bifreiðarstjóra sem sinnir jafnframt hlutverki öryggisvarðar hlutaðeigandi ráðherra, ásamt því að vera versta martröð þeirra sem vilja tala við ráðherra og hafa ekki pantaðan tíma.“Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og ekkert mál er of stórt eða of lítið. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en vinsamlegast látið hana í friði.
Harmageddon Mest lesið 10 ráð til að eiga ánægjulegra kynlíf Harmageddon Sannleikurinn: Sminkurnar á Stöð 2 að gefast upp á Loga Bergmann Harmageddon Púlsinn 18.ágúst 2014 Harmageddon Jón Gnarr telur heiminn bættari án trúarbragða Harmageddon Nýsjálenskir femínistar snúa vörn í sókn Harmageddon Endahnútur bundinn á Quarashi Harmageddon Miðill spáir stórum jarðskjálfta á morgun Harmageddon Shades of Reykjavík með nýtt lag og myndband Harmageddon Söngvari Stone Roses vitni í kynferðisafbrotamáli Harmageddon Malcolm Young snýr ekki aftur í AC/DC Harmageddon